Gylfi í dótabúð með krökkunum í Swansea í tilefni af jólunum | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. desember 2016 12:00
Sextíu heppnir krakkar í Swansea fengu ekki aðeins að velja sér eina eða tvær jólagjafir í dótabúðinni Smyths að tilefni jólahátíðarinnar heldur hittu krakkarnir líka stjörnur Swansea-liðsins. Swansea-leikmennirnir Gylfi Þór Sigurðsson, Leroy Fer, Nathan Dyer, Neil Taylor, Wayne Routledge og Kyle Naughton létu sér ekki vanta og hjálpuðu krökkunum að velja sér dót. Auk þess gáfu Gylfi og félagar sér góðan tíma fyrir myndatöku, að skrifa eiginhandaráritanir og að tala aðeins við krakkana. Eiga þeir allir mikinn heiður skilinn fyrir að vera tilbúnir að gefa bæði tíma og pening fyrir svona dýrmætt samfélagsverkefni. Leikmenn Swansea mættu síðan með krökkunum á kassann og borguðu fyrir gjafirnar þeirra. Neil Taylor, leikmaður Swansea, skipulagði verkefnið en krakkarnir sextíu sem fengu að koma eru allt krakkar sem eiga um sárt að binda. Það er því ljóst að þetta hefur verið sannkallaður ævintýradagur fyrir þau. Swansea segir frá þessu skemmtilega framtaki Gylfa og félaga inn á heimasíðu sinni en þar má einnig finna myndband frá deginum sem er aðgengilegt hér fyrir neðan. Nú er bara að vona að karmað sé með leikmönnum Swansea í leikjum liðsins yfir hátíðirnar en þar þarf Swansea helst að fá öll sex stigin út úr tveimur heimaleikjum á móti West Ham og Bournemouth.The #Swans brought some festive cheer to a group of happy youngsters...https://t.co/NcIjUUd2Sj — Swansea City AFC (@SwansOfficial) December 22, 2016
Enski boltinn Mest lesið Verður Aron þjálfari FH? Handbolti Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Enski boltinn Ef ég væri að spila gegn Liverpool myndi ég trúa á sigur Íslenski boltinn Danskur skúrkur og Wolfsburg fallið í fyrsta sinn í 30 ár Fótbolti Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Íslenski boltinn Öflug sveit á Norðurlandamótið Sport Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi Íslenski boltinn Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Enski boltinn Enn er Rosenborg í veseni Fótbolti Haukar ósigraðir á toppnum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Harðorð skýrsla og allt í skrúfunni hjá Southampton Slot tjáði sig loks eftir árás Salah Fyrirliðinn víðsfjarri þegar Tottenham gæti fallið Englandsmeistaraklipping á Selfossi: „Dásamlegir tímar“ Liverpool gæti komið Brighton í Meistaradeild Evrópu Steve McClaren til Rotherham Arsenal í skrúðgöngu daginn eftir úrslitaleikinn Hefnist fyrir klúðrið á Old Trafford Fögnuðu fram á morgun: „Þeir hlæja ekki lengur“ Sjáðu mörkin: Titilvonir City urðu að engu og falldraugir vofir yfir Tottenham Sjáðu Englandsmeistara Arsenal tryllast af fögnuði Sjá meira