Lánlausir Svanirnir töpuðu þriðja leiknum í röð Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. desember 2016 16:45 Gylfi Þór Sigurðsson svekktur á heimavelli í dag. vísir/getty
Swansea gæti endað annan dag jóla í botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar ef úrslitin í leik Hull og Manchester City seinna í dag verða því óhagstæð. Gylfi Þór Sigurðsson og félagar töpuðu þriðja leiknum í röð í deildinni í dag þegar liðið steinlá á heimavelli, 4-1, gegn West Ham sem er nú komið á skrið og er búið að vinna þrjá leiki í röð. Ganverjinn André Ayew, sem spilaði með Swansea í fyrra, kom gestunum á bragðið strax á 13. mínútu en staðan var 1-0 í hálfleik. Varnarmennirnir Winston Reid og Michail Antonio bættu við tveimur mörkum á 50. og 78. mínútu, en með þeim gerðu gestirnir út um leikinn. Spænski framherjinn Fernando Llorente klóraði í bakkann fyrir Swansea með marki á 89. mínútu en það var bara alltof lítið og alltof seint. Niðurlægingunni var ekki lokið því Andy Carroll innsiglaði 4-1 sigur West Ham. Gylfi Þór Sigurðsson var allt í öllu að vanda hjá Swansea. Hann átti endalaust af fyrirgjöfum í leiknum, skalla sem var varinn í horn og þá átti hann eina fína aukaspyrnu sem því miður rataði ekki í netið. Swansea-vörnin heldur áfram að sýna að hún er sú versta í deildinni, en liðið er nú búið að fá á sig 19 mörk í síðustu sex leikjum og halda einu sinni hreinu á því tímabili.
Enski boltinn Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Fleiri fréttir O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Báðir þurfa bikar Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Löng bið Leeds eftir marki lengist Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Bras á gestunum og Brighton í Meistaradeildarbaráttu Ekitiké fór grátandi af velli Sjáðu mörkin og vítadómana sem United-menn eru æfir yfir Hér eftir verður það refsivert að smygla sér inn á leiki „Annaðhvort eru bæði brotin víti eða hvorugt“ Maguire fékk rautt og United missti tvívegis niður forystuna Arteta gaf ekkert upp um þátttöku Ödegaard í úrslitaleiknum Vandræðalegi markvörður Tottenham gæti átt strax endurkomu Yfirlýsing Liverpool: „Leikmenn okkar eru manneskjur en ekki skotmörk“ Býst við því að Salah jafni sig fljótt „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Guardiola: Liverpool-liðið hans Klopp er erfiðasta áskorunin en ekki Real „Þýðir mikið fyrir mig og leikmennina að fá ást frá stuðningsmönnunum“ Andy Carroll nýr stjóri Dagenham & Redbridge Mainoo, Maguire og Shaw eigi allir að fara á HM Segir að Anfield sé orðinn einn auðveldasti staðurinn til að spila á Vill verða varamaður Kane á HM í sumar Isak sást á æfingu Liverpool Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Stórstjarnan biðlar til stuðningsmanna Liverpool Sjá meira