Enski boltinn

Gylfi og félagar við botninn | Sjáðu mörkin

Áfram heldur að ganga illa hjá Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum í Swansea sem eru nú komnir við botn ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-0 tap gegn Middlesbrough.
 
Alvaro Negredo kom Middlesbrough í 2-0 með tveimur mörkum í fyrri hálfleik, annað á 18. mínútu og svo úr vítaspyrnu á 29. mínútu. Staðan 2-0 í hálfleik.
 
Marten De Roon rak svo síðasta naglann í líkkistu Swansea í síðari hálfleik og lokatölur 3-0. Middlesbrough er í þrettánda sæti deildarinnar með 18 stig.

Swansea á botninum með tólf stig ásamt Hull, en Gylfi Þór Sigurðsson spilaði allan leikinn fyrir Swansea. Þeir eru þremur stigum frá öruggu sæti



Fleiri fréttir

Sjá meira


×