Enski boltinn

Sjáðu hvernig City vann Arsenal og öll hin mörkin í enska um helgina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Leroy Sane fagnar marki sínu á móti Arsenal.
Leroy Sane fagnar marki sínu á móti Arsenal. Vísir/AFP
Sautjánda umferð ensku úrvalsdeildarinnar fór fram um helgina fyrir utan einn leik en Bítlaborgarslagurinn er ekki fyrr en í kvöld.

Vísir býður lesendum sínum upp á að sjá allt það helsta sem átti sér stað í hverjum leik í þessari umferð sem var viðburðarrík.

Manchester City er að komast aftur á skrið og vann Arsenal sem er aftur á móti lið í smá vandræðum. Manchester United vann þökk sé Svíanum Zlatan Ibrahimovic og Chelsea gefur ekkert eftir í toppsætinu.

Hér fyrir neðan má sjá myndbönd þar sem farið yfir öll atvik helgarinnar í ítarlegum myndböndum. Það má finna samantektir úr hverjum einasta leik auk þess sem hver dagur er gerður upp í einu myndbandi.

Að lokinni hverri umferð er hún svo gerð upp með því að skoða bestu mörkin, bestu markvörslurnar og fyndnustu augnablikin. Lokaleikurinn er leikur Liverpool og Everton á Goodison Park í kvöld og koma slík myndbönd því ekki inn á Vísi fyrr en í fyrramálið.

Samantektir úr leikjum birtast ávallt í lok hvers leikdags og eru í birtingu í eina viku. Þau má öllu jafna nálgast á sjónvarpsvef Vísis með því að smella á „Íþróttir“ og „Enski boltinn“.

Messan er síðan á dagskrá Stöðvar 2 Sports í kvöld eftir leikinn í Guttagarði og munu valdar klippur úr henni birtast á Vísi á morgun.

Samantektir helgarinnar:

Stakir leikir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×