Trump hyggst draga Bandaríkin úr fríverslunarsamstarfi Kyrrahafsríkja Atli Ísleifsson skrifar 22. nóvember 2016 08:27 Donald Trump tekur við völdum í Hvíta húsinu þann 20. janúar. Vísir/AFP
Donald Trump hyggst draga Bandaríkin út úr TPP fríverslunarsamningnum um leið og hann tekur við embætti forseta Bandaríkjanna í janúar. Frá þessu greindi Trump í ávarpi sem hann birti á netinu í gærkvöldi þar sem hann fór yfir fyrstu verk sín á forsetastóli. TPP samningarnir eru samningar um fríverslun á milli tólf ríkja sem öll liggja að Kyrrahafinu. Trump hefur gagnrýnt samninginn harðlega og segir hann bitna á atvinnulífinu í Bandaríkjunum. Samningurinn hefur verið undirritaður en ríkin sem um ræðir eiga þó enn eftir að staðfesta hann heima fyrir og ef Trump fær sínu fram verða Bandaríkjamenn ekki meðal samningsaðila. Trump hét því einnig að auka vinnuna í kolanámum Bandaríkjanna með því að rýmka reglugerðir þar að lútandi og þá vill hann koma í veg fyrir að fólk geti misnotað vegabréfaáritanir og komist þannig inn í landið. Trump minntist hins vegar ekkert á múrinn umtalaða sem hann hefur lofað að reisa á landamærum Mexíkó og þá kom Obamacare ekki til tals, en Trump hefur fundið sjúkratryggingakerfinu sem Obama forseti kom á allt til foráttu. Sjá má ávarp Trump að neðan.
Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira