Bíó og sjónvarp

Leikstjóri Justice League deilir nýjum myndum af tökustað á Íslandi

Birgir Olgeirsson skrifar
Jason Momoa á Ströndum og bryggjuhúsið í Gjögri.
Jason Momoa á Ströndum og bryggjuhúsið í Gjögri. Zack Snyder
Leikstjórinn Zack Snyder hefur birt myndir af tökustað stórmyndarinnar Justice League á Íslandi á Vero-aðgangi sínum. Tökur á myndinni fóru fram á Ströndum í október síðastliðnum þar sem tökuliðið hafðist við Í Djúpavík og í Gjögri.

Í Justice League munu Batman, Superman, Wonder Woman, The Flash, Aquaman og Cyborg taka höndum saman til að verja mannkynið gegn illmennum.

Á myndunum sem Snyder deilir má sjá leikarann Jason Momoa klæddan sem Arthur Curry, sem gengur einnig undir nafninu Aquaman, á Ströndum.

Þá má einnig sjá bryggjuna á Gjögri en bryggjuhúsið hefur verið merkt með skiltinu: Newfoundlands finest seafood, eða fínasta sjávarfang Nýfundnalands.

Má því leiða líkur að því að tökurnar sem voru á Ströndum eigi að gerast á Nýfundnalandi. Í stiklu úr myndinni sem frumsýnd var á Comic Con í San Diego í júlí síðastliðnum mátti sjá Ben Affleck, í hlutverki Bruce Wayne, tala við gesti á ónefndu öldurhúsi þar sem hann segist vera að leita að manni sem kemur með háflóði og færir íbúum þorpsins fisk þegar hvað harðast er í ári.

Tökulið myndarinnar breytti meðal annars gömlu verksmiðjunni í Djúpavík í einskonar öldurhús. Sjá nánar hér.

Í þessu atriði mátti sjá nokkra íslenska leikara, þar á meðal Ingvar E. Sigurðsson, Ágústu Evu Erlendsdóttur, Kristbjörgu Kjeld og Salóme Gunnarsdóttur. Var sú sena tekin upp í Lundúnum síðastliðið vor en kvikmyndaverið Warner Bros. sendi flugvél eftir íslensku leikurunum til að flytja þá þangað frá Íslandi. Er Ingvar E. sagður hafa fengið nokkrar línur á móti Ben Affleck við tökur á atriðinu, en óvíst er hvort það muni rata í lokaútgáfu myndarinnar.

Stórar stjörnur voru staddar hér á landi í október við tökur á myndinni, þar á meðal fyrrnefndur Jason Momoa, Ben Affleck, Willem Dafoe og leikkonan Amber Heard.

Willem Dafoe leikur Nuidis Vulko sem er einn nánasti samstarfsmaður Arthur Curry/Aquaman en þeir eru báðir hluti af Atlantis-fólkinu sem lifir neðansjávar.

Warner Bros birti einnig mynd af Amber Heard í fullum skrúða í fjörunni í Gjögri á Ströndum en leikur Meru í Justice League en í DC-myndasagnaheiminum er hún eiginkona Arthur Curry.

Tökurnar í Djúpavík gætu því mögulega tengst leit Bruce Wayne að Aquaman líkt og kom fram í stiklu myndarinnar og að sú leit hans leiði hann til Nýfundnalands.

Hér má svo sjá þriðju mynd Zack Snyder frá Ströndum.Zack Snyder

Tengdar fréttir

Jón fær varla frið eftir samstuðið við Batman

Jón Halldórsson landpóstur segir fréttir af samskiptum hans við kvikmyndagerðarfólk í Djúpuvík komnar út um allan heim. Jón var gagnrýndur fyrir að virða ekki myndabann á tökustað en segir þá gagnrýni vera storm í vatnsglasi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×