Menntaskólinn í Hamrahlíð stóð uppi sem sigurvegari Erna Agnes Sigurgerisdóttir skrifar 13. nóvember 2016 11:25 Liðið skipa Magdalena Guðrún Bryndísardóttir, Jessý Jónsdóttir, Ásmundur Jóhannsson, Ívar Dór Orrason og Unnar Ingi Sæmundsson. Vísir/ Háskólinn í Reykjavík
Menntaskólinn við Hamrahlíð vann Boxið, framkvæmdarkeppi framhaldsskólanna sem haldin var í Háskólanum í Reykjavík í gær. Liðið skipuðu Magdalena Guðrún Bryndísardóttir, Jessý Jónsdóttir, Ásmundur Jóhannsson, Ívar Dór Orrason og Unnar Ingi Sæmundsson. Lið Kvennaskólans í Reykjavík varð í öðru sæti en lið Menntaskólans í Reykjavík varð í því þriðja. Samtök iðnaðarins, HR og Samband íslenskra framhaldsskólanemenda standa að baki keppninni en þetta er í sjötta skiptið sem hún er haldin. Markmið keppninnar er að kynna og vekja áhuga nemenda í framhaldsskólum á verk- og tækninámi ásamt öðrum fjölbreyttum störfum í iðnaði. Í keppninni eiga þátttakendur að leysa fjölbreyttar þrautir sem reyna á bóklega og verklega þekkingu, hugvit og verklag. Liðin þurfa að fara í gegnum þrautabraut sem innihélt átta þrautir. Þrautirnar eru sérhannaðar af sérfræðingum fyrirtækjanna CCP, ÍAV, Marel, Matís, ORF Líftækni, Orkuvirki, Trefjar og Verkís. Fræðimenn frá HR aðstoðuðu fyrirtækjasérfræðingana. Meðal þrauta sem liðin þurftu að leysa var að verja egg fyrir falli úr þriggja metra hæð, byggja líkan af námuskipi úr tölvuleiknum EVE Online, smíða líkan af þrívíddarbyggingu prótíns og koma með hugmyndir að nýrri matvöru. Þrautirnar eru því jafn misjafnar og þær eru margar. Liðin fengu aðeins hálftíma til að leysa hverja þraut. Lið frá Menntaskólanum við Hamrahlíð, Menntaskólanum í Reykjavík, Kvennaskólanum í Reykjavík, Menntaskólanum að Laugarvatni, Fjölbraut í Breiðholti, Menntaskólanum í Kópavogi og Fjölbrautaskóla Suðurlands kepptu til úrslita. Forkeppnin var í lok október og tóku upphaflega 21 lið frá 13 skólum þátt. Menntaskólinn á Akureyri sigrað keppnina í fyrra.
Mest lesið „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Erlent Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Innlent Segir ótímabært að ræða undanþágur Innlent Fleiri fréttir „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Sjá meira