Ellefu nautgripir drápust í stórbruna Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 14. nóvember 2016 18:32 Slökkvistarf hafði staðið yfir í um sex klukkustundir þegar Vísir náði tali af Baldri Pálssyni slökkviliðsstjóra. Vísir/Stefán
Ellefu nautgripir drápust í stórbruna við bæinn Fögruhlið í Jökulsárhlíð um hádegisbil í dag. Brunavarnir á Austurlandi vinna enn að því að slökkva eldinn, að sögn Baldurs Pálssonar, slökkviliðsstjóra. Mbl.is greindi fyrst frá. Baldur segir að um altjón á fjárhúsi, sem rúmar 540 krindur, og gripahúsi sé að ræða, en ekkert fé var inni í fjárhúsinu. „Kindurnar voru allar úti. Núna erum við að reyna að ná járnþaki af fjárhúsinu til þess að reyna að slökkva í öllum glæðum svo járnið fari ekki að fjúka um allt. Það er enn eldur undir járninu,“ segir Baldur í samtali við Vísi. Hann segir að slökkviliðið verði á vettvangi þar til búið sé að ganga úr skugga um að slökkt hafi verið í öllum glæðum. Þær geti teygt sig í þúsund heyrúllur sem séu þar skammt frá. Aðspurður segir Baldur að íbúar hafi ekki verið heima þegar eldurinn kom upp, og að því hafi engan sakað. Upptök eldsins séu enn sem komið er ókunn.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Sjá meira