Íbúar skora á vinsælan lækni sem fær ekki fulla stöðu á Hvolsvelli Sveinn Arnarson skrifar 15. nóvember 2016 06:45 Ísólfur Gylfi Pálmason er sveitarstjóri Rangárþings eystra. vísir/vilhelm
Undirskriftum íbúa í Rangárþingi eystra er nú safnað til að skora á Þóri Kolbeinsson, lækni á Hellu, að halda áfram störfum við Heilbrigðisstofnun Suðurlands og skorað er á stjórn HSU að gera það sem í hennar valdi stendur til að halda í starfskrafta hans. Skila á undirskriftum til forstjóra HSU í lok vikunnar. Á meðan komum á heilsugæsluna á Hvolsvelli hefur fjölgað í takt við fjölgun ferðamanna á svæðinu hefur lækninum, Þóri Kolbeinssyni, verið neitað um fulla stöðu við heilsugæsluna og íhugar hann því að flytjast búferlum. Síðan í hruninu hefur Þórir verið í 75 prósent stöðu sem læknir. Þórir hefur um árabil reynst svæðinu vel og því finnst íbúum sárt að sjá á eftir honum. Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri Rangárþings eystra, segir Þóri hafa verið öflugan lækni og fjöldi íbúa vilji ólmir halda honum áfram á svæðinu. „Þórir hefur verið kjölfesta í samfélaginu og þess vegna er þessi undirskriftasöfnun orðin að veruleika. Íbúar á svæðinu hafa þurft að taka á honum stóra sínum vegna skorts á þjónustu HSU hér á Hvolsvelli síðustu misseri,“ segir Ísólfur Gylfi. Hann vill þó árétta að undirskriftasöfnunin er ekki á vegum sveitarfélagsins heldur sprottin upp hjá hjá grasrót íbúa á svæðinu sem vilji halda Þóri. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur andað köldu í samskiptum manna á milli innan HSU. Ekki er langt síðan sveitarstjórn krafðist þess að HSU færi eftir samningi við sveitarfélagið þegar HSU ætlaði að loka starfsstöð sinni á Hvolsvelli.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent Maðurinn sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Erlent „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Erlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út Innlent Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Sjá meira