Umhverfi Selárlaugar bitbein Vopnafjarðarhrepps og Fremri-Nýps Jóhann Óli Eiðsson skrifar 15. nóvember 2016 07:00 Selárlaug var löngum opin allan sólarhringinn en opnunartími var styttur sökum slæmrar umgengni. MYND/MAGNÚS MÁR
Héraðsdómur Austurlands vísaði á dögunum kröfu Vopnafjarðarhrepps á hendur eiganda Fremri-Nýps og Ungmennafélaginu Einherja frá dómi. Umrædd krafa snýr að viðurkenningu á eignarrétti hreppsins á landsvæði umhverfis Selárlaug.Ólafur Áki RagnarssonSundlaugin var byggð árið 1948 af Einherja í landi Fremri-Nýps. Þá var jörðin í eigu hreppsins en var seld árið 1963. Sundlaugin og „nauðsynlegt athafnasvæði“ voru undanskilin kaupunum og skyldu mæld út og afmörkuð nánar síðar meir. Það var aldrei gert og þaðan er ágreiningurinn sprottinn. Líkt og áður segir var málinu vísað frá dómi. Það var gert á þeirri forsendu að efnisdómur um málið fæli í sér stofnun á sjálfstæðri fasteign. Slíkt er háð lögbundnum skilyrðum og eftir atvikum samþykki stjórnvalda. Taldi dómari málsins að með því færi hann inn á verksvið stjórnvalda. „Við höfum kært úrskurðinn áfram til Hæstaréttar,“ segir Ólafur Áki Ragnarsson, sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps. Annað mál frá hreppnum er sem stendur fyrir sama dómstól en áður en hægt er að fá botn í það þarf að skera úr um eignarhald á landsvæðinu. Árið 2011 óskaði Veiðifélag Selár þess að fá umframvatn úr borholum á jörðinni til að kynda veiðihúsið. Var það samþykkt með þeim fyrirvara að vatn í laugina hefði forgang yfir veiðihúsið. Hreppurinn hefur krafið Veiðifélagið um fjórar milljónir króna fyrir heita vatnið sem félagið hafnar að greiða meðal annars á þeim forsendum að holurnar séu í þeirra eigu. Ljóst er að niðurstaða mun ekki fást í síðara málið fyrr en skorið hefur verið úr um eignarhald á landspildunni.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Erlent Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Innlent Segir ótímabært að ræða undanþágur Innlent Fleiri fréttir „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Sjá meira