„Nú er veturinn kominn“ Jóhann K. Jóhannsson skrifar 15. nóvember 2016 19:00
Veturinn er kominn og búast má við töluverðum breytingum í veðri næstu daga. Þetta segir veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands en hvasst útsynnings skúra- eða éljaveður hefur gengið yfir landið í dag. Á þessum degi fyrir þrjátíu og einu ári varð mikið tjón í ofsaveðri sem gekk yfir landið. Síðustu vikur hafa verið óvenju mikil hlýindi á landinu þrátt fyrir að á dagatalinu sé kominn vetur. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var nýliðinn október sá næsthlýjasti sem vitað er um á Akureyri frá upphafi mælinga. Til samanburðar að á þessum degi árið 1985 varð mikið tjón í ofsaveðri sem gekk yfir landið, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu þegar bílar fuku, bátar og skip slitu festum og þakjárn, jafn vel heilu þökin hafi fokið út í buskan og voru dagblöðin daginn eftir veðurofsann voru full af myndum og greinum um hvernig veðrið lék landið. Samkvæmt veðurspám frá Veðurstofu Íslands er nú komið að breytingum í veðrinu. Í dag hefur gengið á með hvössu útsynnings skúra- eða éljaveðri víða um land og segir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands ágætt að fólk hafi það bak við eyrað að vetur sé genginn í garð. „Það er kominn vetur núna hjá okkur. Miklar breytingar í veðrinu. Við erum búin að hafa milt haust og nú má búast við kulda og snjókomu,“ segir Helga Ívarsdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Á höfuðborgarsvæðinu hefur verið hvasst og skúra eða éljaveður í dag. „Það má búast við að það verði svona fram að miðnætti,“ segir Helga.Og áfram má búast við þessu. „Við verðum áfram í suðvestan éljagangi í kvöld en síðan í nótt dregur úr vindi og éljum en á morgun snýst í norðanátt og vaxandi vind þegar líður á daginn og það verður éljagangur fyrir norðan en léttir til hérna fyrir sunnan,“ segir Helga. Með veðrinu sem gengur yfir landið má búast við því að færð komi til með að spillast og þurfa ökumenn að hafa varan á. „Sérstaklega þeir sem eru ekki búnir að undirbúa sig og eru enn þá á sumardekkjum. Þetta er engin færð fyrir þá. En fyrir norðan þá má alveg búast við því að það verði lélegt ferðaveður annað kvöld og á fimmtudag,“ segir Helga.
Mest lesið Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Erlent „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Erlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Innlent Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Erlent Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Erlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Fleiri fréttir Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Sjá meira