Bíó og sjónvarp

Sigurför Hjartasteins

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Baldur Einarsson og Blær Hinriksson fara með aðalhlutverkin í Hjartasteini og hafa hlotið lof fyrir.
Baldur Einarsson og Blær Hinriksson fara með aðalhlutverkin í Hjartasteini og hafa hlotið lof fyrir.

Kvikmyndin Hjartasteinn hefur farið sannkallaða sigurför um heiminn og raðað inn verðlaunum á hverri kvikmyndahátiðinni eftir annari. Lífið tekur hér saman verðlaunin og birtir nokkrar myndir af hátíðunum sem eru orðnar ansi margar.

Hjartasteinshópurinn kominn saman á sviðinu í Lübeck á Norrænu kvikmyndadögunum þar sem Hjartasteinn hreppti aðalverðlaunin.Mynd/Olaf Malzahn

Hjartasteinn hefur nú þegar þetta er skrifað unnið 12 verðlaun á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum. Hjartasteinn verður frumsýnd á aðaltökustað sínum, Borgarfirði eystri, þann 28. desember og fer í almennar sýningar þann 13. janúar. Hér er listi yfir hátíðirnar sem myndin hefur þegar verið á og þau verðlaun sem hún hefur hlotið:

Guðmundur Arnar Guðmundsson leikstjóri og Anton Máni Svansson framleiðandi stilla sér upp með Queer Lion verðlaunin sem þeir hlutu á Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum en hún er elsta kvikmyndahátíð í heiminum.Mynd/Moris Puccio

Kvikmyndahátíðin í Feneyjum, Ítalíu

-Queer Lion verðlaunin



TIFF – Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Toronto, Kanada

 

Guðmundur Arnar Guðmundsson leikstjóri með verðlaunin þrenn sem Hjartasteinn hlaut á kvikmyndahátíðinni í Varsjá.Mynd/Rafal Nowak

Kvikmyndahátíðin í Varsjá, Póllandi

-Besti leikstjórinn

-Baldur Einarsson hlaut sérstök dómnefndarverðlaun fyrir leik sinn

-Kirkjuverðlaun hátíðarinnar



Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Busan, Suður-Kóreu

Leikstjórinn stillir sér upp með Gold Q Hugo verðlaunin á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Chicago.Mynd/Timothy M. Schmidt 

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Chicago

-Gold Q Hugo verðlaunin



Kvikmyndahátíðin í Ghent, Belgíu



CPH:PIX kvikmyndahátíðin í Kaupmannahöfn, Danmörku

-Áhorfendaverðlaun Politiken



Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Sao Paulo, Brasilíu

Anton Máni Svansson, framleiðandi myndarinnar, þakkar hér fyrir sig á alþjóðlegu Molodist kvikmyndahátíðinni í Kænugarði í Úkraínu þar sem Hjartasteinn tók þrenn verðlaun.Mynd/Volodymyr Shuvayev

Alþjóðlega Molodist kvikmynda­hátíðin í Kænugarði, Úkraínu

-Áhorfendaverðlaun hátíðarinnar

-FIPRESCI verðlaun samtaka gagnrýnenda

-Baldur Einarsson hlaut sérstök dómnefndarverðlaun fyrir leik sinn



Scanorama alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Vilníus, Litháen



Evrópska kvikmyndahátíðin í Sevilla, Spáni

-Ocaña frelsisverðlaunin

Aðalverðlaunin í Lübeck í höndum Guðmundar Arnars sem getur nú verið ansi grobbinn með árangur Hjartasteins.Mynd/Olaf Malzahn

Norrænu kvikmyndadagarnir í Lübeck, Þýskalandi

-Aðalverðlaun hátíðarinnar - NDR verðlaunin



Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Þessalóníku, Grikklandi

-Silfurverðlaun hátíðarinnar (Silver Alexander verðlaunin)

Frekari upplýsingar um Hjartastein má nálgast á Facebooksíðu myndarinnar hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×