Innlent

Sveinbjörg Birna spyr út í launakjör Dags

Jakob Bjarnar skrifar
Sveinbjörg Birna ætlar að forvitnast um launakjör borgarstjóra nú á eftir en Dagur þiggur meðal annars 305 þúsund krónur fyrir að sitja mánaðarlega fund hjá Faxaflóahöfnum.
Sveinbjörg Birna ætlar að forvitnast um launakjör borgarstjóra nú á eftir en Dagur þiggur meðal annars 305 þúsund krónur fyrir að sitja mánaðarlega fund hjá Faxaflóahöfnum.
Borgarstjóri er með 1,5 milljón á mánuði auk þess sem hann þiggur rúmar 300 þúsund krónur fyrir setu í stjórn Faxaflóahafna.

Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknarmanna í borginni, hyggst á borgarstjórnarfundi nú í dag, leggja fram sérstaka fyrirspurn um launakjör Dags B. Eggertssonar borgarstjóra.

Laun borgarstjóra eru þau sömu og forsætisráðherra, sem voru fyrir hina umdeildu hækkun sem kjararáð ákvarðaði og kynnt var strax í kjölfar síðustu alþingiskosninga. Þau laun eru 1,5 milljón en eiga að fara í rúmar tvær milljónir. Dagur lagði reyndar fram tillögu í vikunni sem samþykkt var í borgarstjórn þess efnis að laun kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg yrðu óbreytt þrátt fyrir úrskurð kjararáðs. Í tengslum við umræðu um það kom fram að laun borgarfulltrúa eru hlutfall af þingfararkaupi, 70 prósent utan borgarstjóra sem er á pari við forsætisráðherra.

Nefndarstörf og ívilnanir hleypa laununum upp

En, strípaður launataxti stjórnmálamanna segir ekki alla söguna. Nefndarstörf og allskyns ívilnanir hleypa laununum vel upp. Fréttatíminn greindi frá því fyrir skömmu að stjórnarmenn í Orkuveitu Reykjavíkur og Faxaflóahafna, þar sem formaðurinn er borgarstjórinn sjálfur, Dagur B. Eggertsson, og þiggur hann 305 þúsund krónur fyrir að sitja mánaðarlegan fund.

Vísir heyrði í Sveinbjörgu fyrir borgarstjórnarfund og hún ætlar að spyrja út í þessi atriði auk þess að óska eftir því hver laun borgarstjóra eru vegna setu í stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og Almannavörnum?

Hvað kostar bíllinn?

Sveinbjörg tjáði Vísi að hún ætlaði einnig að óska eftir upplýsingum um hvenær það var síðast sem borgarstjóri tók sæti sem stjórnarformaður og/eða stjórnarmaður í Faxaflóahöfnum eða Orkuveitunni og þáði greiðslur fyrir. Eftir því sem Vísir kemst næst eru fá ef nokkur fordæmi fyrir því.

Þá mun Sveinbjörg jafnframt fara fram á upplýsingar um embættisbifreið borgarstjóra, hvenær hún var keypt, af hverjum og kaupverð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×