Særún Sveinsdóttir látin Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. nóvember 2016 10:27 Særún Sveinsdóttir Williams.
Særún Sveinsdóttir Williams lést á heimili sínu í Bandaríkjunum 6. nóvember síðastliðinn 56 ára gömul. Bálför hefur farið fram en minningarathöfn í Hafnarfirði verður auglýst síðar. Særún lætur eftir sig fimm uppkomin börn. Særún lenti í mjög alvarlegu bílslysi í Omaha í Nebraska í Bandaríkjunum í nóvember 2005. Í slysinu missti hún báða fótleggi fyrir ofan hné. Henni var ekki hugað líf og læknar sögðu kraftaverk að hún hefði lifað slysið af. Fyrrverandi bekkjarfélagar Særúnar í Öldutúnsskóla efndu til söfnunar til styrktar Særúnar eftir slysið og sagði hún í viðtali við Fréttablaðið ári eftir slysið að það hefði hjálpað henni mikið að vita af baklandi sínu á Íslandi. Særún festi meðal annars kaup á sérútbúnum bíl eftir slysið en hann gerði henni kleyft að komast allra sinna leiða eftir slysið án aðstoðar. Hún sagði í viðtali við Fréttablaðið á þeim tíma að bíllinn hefði breytt öllu. „Þetta hefur komið sér svo vel að ég hef grátið yfir því hvað fólk er gott við mig,“ sagði Særún. „Þetta sýnir hvernig Íslendingar eru. Þeir hugsa um sína hvort heldur er nær eða fjær. Ég get aldrei þakkað þessu yndislega fólki nógsamlega fyrir allar þær velfarnaðaróskir, velvilja og stuðning, sem ég hef fengið. Með aðstoðinni hef ég getað greitt niður skuldir mínar, borgað húsaleiguna og staðið undir fleiri útgjöldum sem ella hefðu reynst mér óyfirstíganlegur hjalli.“
Tengdar fréttir Lifir fyrir börnin sín Særún Sveinsdóttir Williams missti neðan af báðum fótum í bílslysi. Hún er bjartsýn á framtíðina. Fjölskyldan verður hjá henni um jólin. 13. desember 2005 04:00 Söfnun hafin fyrir Særúnu Bekkjarfélagar safna fé fyrir Særúnu Sveinsdóttur sem missti fæturna. 1. desember 2005 07:45 Fær enn martröð þrem vikum eftir slysið Særún Sveinsdóttir Williams, sem missti báða fætur í bílslysi í Bandaríkjunum fyrir þremur vikum, fær enn martraðir eftir slysið. Hún liggur alvarlega slösuð á sjúkrahúsi, en segist afar þakklát fyrir að vera á lífi. Hafin er fjársöfnun til handa þessari einstæðu þriggja barna móður. 12. desember 2005 20:30 Missti báða fæturna í hörmulegu bílslysi Særún Sveinsdóttir Williams stórslasaðist í þriggja bíla árekstri á fjölfarinni hraðbraut í Omaha í Bandaríkjunum. Hún telur sig hafa misst fæturna þegar bíll vinnufélaga hennar lenti á henni. 22. nóvember 2005 03:30 Á batavegi eftir bílslys Særún Sveinsdóttir er nú á hægum batavegi eftir að hafa misst af báðum fótum í bílslysi í Omaha í Nebraska-ríki í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. 12. desember 2005 00:45 Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Bað um myndir af kynfærum tíu ára stúlku Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Sjá meira
Lifir fyrir börnin sín Særún Sveinsdóttir Williams missti neðan af báðum fótum í bílslysi. Hún er bjartsýn á framtíðina. Fjölskyldan verður hjá henni um jólin. 13. desember 2005 04:00
Söfnun hafin fyrir Særúnu Bekkjarfélagar safna fé fyrir Særúnu Sveinsdóttur sem missti fæturna. 1. desember 2005 07:45
Fær enn martröð þrem vikum eftir slysið Særún Sveinsdóttir Williams, sem missti báða fætur í bílslysi í Bandaríkjunum fyrir þremur vikum, fær enn martraðir eftir slysið. Hún liggur alvarlega slösuð á sjúkrahúsi, en segist afar þakklát fyrir að vera á lífi. Hafin er fjársöfnun til handa þessari einstæðu þriggja barna móður. 12. desember 2005 20:30
Missti báða fæturna í hörmulegu bílslysi Særún Sveinsdóttir Williams stórslasaðist í þriggja bíla árekstri á fjölfarinni hraðbraut í Omaha í Bandaríkjunum. Hún telur sig hafa misst fæturna þegar bíll vinnufélaga hennar lenti á henni. 22. nóvember 2005 03:30
Á batavegi eftir bílslys Særún Sveinsdóttir er nú á hægum batavegi eftir að hafa misst af báðum fótum í bílslysi í Omaha í Nebraska-ríki í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. 12. desember 2005 00:45