Danshöfundur Beyoncé kennir Íslendingum Kjartan Guðmundsson skrifar 11. október 2016 10:00 Þær Stella Rósenkranz og Kara Hergils hjá Dansstúdíó World Class eru spenntar fyrir komu hinna heimsfrægu dansara Hollywood og KK Harris til landsins. Vísir/Eyþór „
Þegar við sögðum frá því að þau væru að koma til Íslands fóru dansararnir okkar að gráta. Það er bara þannig. Við erum þar,“ segir Stella Rósenkranz, deildarstjóri og danskennari hjá Dansstúdíó World Class, eða DWC. Ástæðan fyrir spenningnum er koma tveggja af stærstu dönsurunum á heimsvísu í dag til landsins, þeirra Hollywood og KK Harris, sem verða með danstíma á DWC Dance Camp sem fer fram í fyrsti skipti dagana 14. og 15. október í nýrri World Class stöð í Breiðholti. „Það má líkja þessu við það að Lionel Messi og Cristiano Ronaldo kæmu hingað og héldu fótboltanámskeið. Þetta eru stórstjörnur. Við höfum aldrei fengið svona stór nöfn hingað áður.“Jose HollywoodStella segist afar spennt fyrir því að geta flutt slíkar „sleggjur“ í dansbransanum til landsins, eins og hún orðar það. „Við gerum þetta til að færa íslenska dansara nær þessum vinsælu erlendu dönsurum og við viljum efla danssamfélagið á Íslandi með því að flytja inn svona stór nöfn,“ útskýrir hún og bætir við að bæði Hollywood og KK Harris séu risastórar stjörnur í hinum ört vaxandi dansheimi. Hollywood er einn af danshöfundum hinnar gríðarvinsælu tónlistarkonu Beyoncé og hefur einnig samið dansa fyrir tónlistarkonur á borð við Rihönnu, Nicky Minaj og Jennifer Lopez, á meðan KK Harris hefur meðal annars unnið með Britney Spears og er núna aðaldansari tónlistarmannsins Usher. Stella segir þau Hollywood og KK Harris einnig eiga það sameiginlegt að njóta mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum og eiga þar fylgjendur í milljónavís. „Þessir vinsælustu dansarar í dag eru orðin stór vörumerki því dansheimurinn er orðinn svo stór. Fólk fylgist með þeim á YouTube, Instagram og öllum þessum samfélagsmiðlum og lærir þannig dansana. Í gamla daga tóku allir dansa upp á VHS og lærðu þannig, en í dag er aðgengið orðið svo miklu betra. Sumir verða hissa á þessari aðdáun og spyrja hvað sé svona merkilegt við einhverja dansara, en staðreyndin er sú að í augum margra eru þessir vinsælu dansarar miklar fyrirmyndir,“ segir Stella og bætir við að það sé engin tilviljun að dansinn njóti svo mikilla vinsælda sem raun ber vitni.KK Harris„Orkan sem fylgir því að dansa er svo jákvæð. Maður fær útrás fyrir það sem maður elskar með því að dansa og það er spennandi að læra af þeim bestu. Alveg eins og maður verður æsispenntur þegar íslenska landsliðið í knattspyrnu skorar mark eða sér uppáhaldstónlistarmanninn sinn koma fram á tónleikum.“ Aðspurð segir Stella að enginn þurfi að kvíða því að geta ekki fylgt atvinnufólkinu eftir í danskennslunni. „Tímarnir eru opnir öllum og hannaðir þannig að allir dansarar eiga að ráða við sporin, svo ég hvet alla áhugasama til að skrá sig.
Mest lesið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið Fleiri fréttir Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Sjá meira