Innlent

Salek-samstarfið sett á ís

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Frá undirritun Salek-samkomulagsins í Iðnó í október á síðasta ári.
Frá undirritun Salek-samkomulagsins í Iðnó í október á síðasta ári. vísir/pjetur
Salek hópurinn, sem hefur haft formlegt samstarf í þrjú ár um bætta kjarasamningagerð, tók ákvörðun í morgun um að frekara samstarf verði ekki fyrr en niðurstaða liggi fyrir varðandi jöfnun lífeyrisréttinda.

SALEK er skammstöfun fyrir samstarf um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga. Samstarfið er á milli stórs hluta vinnumarkaðsins, hins almenna og hins opinbera, og er ætlað að stuðla að friði á vinnumarkaði og auknum stöðugleika. Hið nýja samningalíkan era ð norrænni fyrirmynd og hefur verið stefnt að upptöku þess fyrir árið 2019.

Ein forsenda fyrir friði á vinnumarkaði hefur verið að jafna lífeyrisréttindi almennra og opinberra starfsmanna en tilraunir til slíks hafa ekki tekist.

„Hópurinn kom saman í morgun í fyrsta skipti eftir að það lá fyrir að samkomulagið væri ekki í höfn. Þá var þessi umræða tekin upp og það er kalt mat hópsins að það sé betra að setja þessa vinnu á ís,“ segir Bryndís Hlöðversdóttir, ríkissáttasemjari og bætir við að allir í hópnum hafi verið sammála um ákvörðunina.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir málið alvarlegt.
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segir ljóst að sátt náist ekki fyrir þessar kosningar enda hafi ríkisstjórnin afturkallað frumvarp um lífeyrisréttindi.

„En á sama fundi ákveður ríkisstjórnin að hækka lífeyrisaldur okkar hinna, almennings, í gegnum almannatryggingakerfið. Það á að herða þar á, gera það á tólf árum í stað 24 ára. Það gengur ekki upp að okkar mati, að binda meginþorra launamanna við þetta en slá skjaldborg um aðra. Það er ójafnræði í því og því ekki grundvöllur um sátt.“

Gylfi segir þó ekki útséð með samstarf í framtíðinni en að boltinn sé hjá næstu ríkisstjórn. Aftur á móti sé bæði alvarlegt og dapurlegt að samstarfið hafi nú verið sett á ís.

„Það er ljóst að ef þetta fer svona fram þá megum við búast við því að það verði meiri ágreiningur og væntanlega þá átök á vinnumarkaði. Málið er því grafalvarlegt,“ segir Gylfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×