Eiginkona forseta Nígeríu segist ekki ætla að styðja hann nema hann hristi upp í ríkisstjórninni Birgir Olgeirsson skrifar 14. október 2016 00:04 Hjónin Aisha Buhari og Muhammadu Buhari. Vísir/EPA
Eiginkona forseta Nígeríu hefur varað hann við að hann muni ekki njóta stuðnings hennar í næstu kosningum hefur hann hristir ekki upp í ríkisstjórn sinni. Forseti Nígeríu heitir Muhammadu Buhari en eiginkona hans, Aisha Buhari, sagði í viðtali við breska ríkisútvarpið BBC að eiginmaður hennar þekki ekki flesta af þeim æðstu embættismönnum landsins sem hann hefur skipað.BBC segir Buhari hafa verið kjörinn í embætti forseta Nígeríu í fyrra gegn loforði hans um að uppræta spillingu og frændhygli í stjórnkerfi landsins. Þessi ákvörðun eiginkonu hans að opinbera áhyggjur sínar hefur komið mörgum í opna skjöldu, en það er talið vera til marks um þá óánægju sem ríkir í garð leiðtogahæfni forsetans núverandi. „Forsetinn þekkir ekki 45 af þeim 50 sem hann skipar og ég þekki þá ekki heldur, þrátt fyrir að hafa verið eiginkona hans í 27 ár,“ sagði Aisha við BBC. Hún vildi meina að ríkisstjórninni hefði verið rænt af hópi fárra manna. Spurð nánar út í þær ásakanir og hverjir stæðu að baki valdaráninu neitaði hún að fara nánar út í það. „Þið sjáið þá í sjónvarpinu.“ Þegar hún var spurð hvort að maðurinn hennar væri enn þá æðsti valdamaður landsins svaraði hún: „Það er fólksins að ákveða.“ Hún sagði eiginmann sinn ekki hafa ákveðið hvort hann muni bjóða sig fram árið 2019. „Hann á eftir að segja mér það en ég hef ákveðið sem eiginkona hans að ef þetta verður svona fram til 2019, þá muni ég ekki hjálpa honum við kosningabaráttuna og biðja konur um að kjósa hann eins og ég gerði í síðustu kosningabaráttu.“
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Fleiri fréttir Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Sjá meira