Kardínálar verulega pirraðir vegna fyrsta McDonalds Vatíkansins Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 14. október 2016 15:39 Kardínálar vilja ekki McDonalds.
Andstæðingar þess að skyndibitakeðjan McDonalds opni sinn fyrsta skyndibitastað í Vatíkaninu hafa fengið liðsstyrk. Kardínálar sem búa fyrir ofan fyrirhugaða staðsetningu McDonalds eru ekki sáttir við fyrirætlanir bandarísku skyndibitakeðjunnar. Í sumar ákvað APSA, stofnun Vatíkansins sem sér um eignir þess, að leigja McDonalds rými í húsi í eign Vatikansins skammt frá Péturstorgi. Á vef Guardian kemur fram að íbúar Vatíkansins, einu minnsta ríki heimsins, séu ekki par hrifnir af áætlunum McDonalds. Þá sérstaklega kardínálarnir sem búa fyrir ofan hinn fyrirhugaða McDonalds-stað. Hafa þeir miklar áhyggjur af því að þeir þurfi að greiða fyrir breytingar á íbúðum sínum sem gera þarf vegna komu McDonalds. Hafa þeir kvartað til APSA í von um að hætt verði við komu McDonalds. Íbúasamtök í hverfinu segja að ekki megi leyfa McDonalds að opna í Vatíkaninu, þar sé nú þegar allt of mikið af verslunum sem selji allskonar glingur. APSA segir að McDonalds hafi boðist til þess að greiða mun hærri leigu en aðrir áhugasamir leigjendur. Segir talsmaður þess að kardínálarnir þurfi ekki að hafa áhyggjur vegna komu McDonalds. Stefnir því allt í að innan skamms geti Frans páfi gætt sér á einum Bic Mac hamborgara, hafi hann á annað borð áhuga á því en híbýli páfans eru skammt frá fyrirhuguðum McDonalds-stað.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Máttu tæma lónið Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Fleiri fréttir Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Sjá meira