Innlent

Vinnubrögð forystumanna BSRB sögð vera gerræðisleg

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bjarni Benediktsson segir að samkomulagið sé stærsta framlag vinnumarkaðarins til stöðugleika inn í framtíðina. Hér heilsar hann Elínu Björgu Jónsdóttur, formanni BSRB, og Þórunni Sveinbjarnardóttur, formanni BHM.
Bjarni Benediktsson segir að samkomulagið sé stærsta framlag vinnumarkaðarins til stöðugleika inn í framtíðina. Hér heilsar hann Elínu Björgu Jónsdóttur, formanni BSRB, og Þórunni Sveinbjarnardóttur, formanni BHM. vísir/gva
Forsvarsmenn fjögurra stéttarfélaga innan BSRB bókuðu mótmæli gegn fyrirhuguðum breytingum á lífeyrissjóðakerfinu á formannafundi sem fór fram í Reykjanesbæ í byrjun september. Þetta voru forsvarsmenn Landssambands lögreglumanna, Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Sjúkraliðafélagsins og Tollvarðafélagsins.

Samkomulag um breytingar á lífeyrissjóðakerfinu voru kynntar á blaðamannafund í gær. Það felur í sér að allt launafólk mun njóta sambærilegra lífeyrisréttinda hvort sem það starfar á opinberum eða almennum vinnumarkaði.

Launafólki verður gert betur kleift að færa sig milli almenns og opinbers vinnumarkaðar hvenær sem er starfsævinnar án þess að það hafi teljandi áhrif á ávinnslu lífeyris­réttinda. Lífeyrisaldur opinberra starfsmanna verður hækkaður úr 65 árum í 67 ár, en þó verður tryggt að núverandi sjóðsfélagar haldi óbreyttum réttindum og geti farið á eftirlaun 65 ára ef þeir kjósa.

Snorri Magnússon
„Samhliða þessu er skiljanlegt að menn leggi áherslu á það að önnur launakjör verði jöfnuð en það hefur ætíð reynst mjög erfitt að taka samtal um jöfnun launakjara á meðan lífeyrisréttindin eru ekki sambærileg. Í framhaldi af þessum breytingum er hægt að ræða um jöfnun launakjara á allt öðrum grunni heldur en gert hefur verið til þessa,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, þegar hann kynnti breytingarnar.

„Grunnprinsippið, samræmt lífeyriskerfi og samræmd launakerfi, er góðra gjalda vert og eitthvað sem við erum fyllilega sammála,“ segir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna. 

Hins vegar sé með samkomulaginu verið að ganga frá til framtíðar réttindaafsali starfsmanna hins opinbera á meðan ekki liggur fyrir á sama tíma hvernig farið verður í að leiðrétta launamuninn milli starfsmanna opinbera og almenna markaðarins. Hann telur að þetta hefði þurft að taka til skoðunar samtímis. 

Stefán Pétursson, formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, segir að stefna sambandsins sé, og hafi verið í mörg ár, að flýta starfslokum sinna félagsmanna. „Okkar óskastaða væri að hefja lífeyristöku um 55 ára aldurinn. En þarna í þessu samkomulagi er talað um að hækka lífeyrissjóðsaldurinn úr 65 í 67 ár og við getum ekki samþykkt það. Það er alveg útilokað,“ segir Stefán.

Í ályktun félagsstjórnarfundar Sjúkraliðafélags Íslands, sem haldinn var 13. september síðastliðinn, segir að stjórnin lýsi yfir verulegum vonbrigðum með þá aðila í forystu BSRB sem hafi samið um og samþykkt gríðarlegar skerðingar á framtíðarlífeyrisréttindum A-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Brúar (lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga). Vinnubrögðin voru sögð gerræðisleg og hvatt til þess að samkomulagið yrði ekki undirritað fyrr en búið væri að kjósa um það í almennri kosningu opinberra starfsmanna.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×