Heldur tónlistarhátíð til heiðurs sér sjálfum Gunnhildur Jónsdóttir skrifar 21. september 2016 10:00 Jón Már Ásbjörnsson hefur ákveðið að halda heila tónlistarhátíð í tilefni 25 ára afmælisins þann 24. september sem ber heitið Gleðileg Jón. Mynd/GVA
Venja er að fólk haldi heljarinnar veislur til þess að fagna tímamótum líkt og stórafmælum en það eru fáir sem ganga jafn langt og Jón Már Ásbjörnsson. Hann hefur ákveðið að halda heila tónlistarhátíð í tilefni 25 ára afmælisins þann 24. september sem ber heitið Gleðileg Jón. Alls er hann búinn að bóka fjórtán hljómsveitir sem munu spila á Dillon frá klukkan fjögur um daginn til miðnættis. En hvað er það sem fékk hann til þess að slá til og skipuleggja þessa heljarinnar veislu? „Ég hef verið að spila mikið á tónleikum þar sem ég er í nokkrum hljómsveitum. Mig hefur alltaf langað til þess að vera gaurinn í crowd-inu sem öll böndin skála fyrir. Þá hugsaði ég bara að það er enginn að fara að gera þetta fyrir mig nema ég sjálfur. Skipulagningin byrjaði og þá fór boltinn bara að rúlla.“ Allir eru velkomnir á hátíðina sem verður haldin á Dillon en Jón á von á því að húsið fyllist enda margar af bestu sveitum senunnar að fara að koma fram. „Ég þekki allavega einn í hverri hljómsveit sem er að spila og í sumum þekki ég alla. Þær eru allar að gera þetta frítt og svo ætlar Krummi á Dillon að gefa mér leiguna og vinnuna sína frítt. Ég er að vísu búinn að tala við kokk til þess að koma og elda ofan í hljómsveitirnar og er að vinna í því að fá fría drykki fyrir þau. Ef ég fæ engan styrk þá kaupi ég þetta bara.“ Hugmyndin hjá Jóni kviknaði í júní en hann er búinn að vera að vinna að tónlistarhátíðinni frá því að hann spilaði á Eistnaflugi. „Það verður eitthvað fyrir alla. Þetta byrjar á þægilegri tónlist og svo verður boðið upp á hiphop, indie og folk, uppistand og svo fer þetta stigvaxandi upp í argasta þungarokk. Ég ætla að spila með fyrstu og seinustu hljómsveitinni svo að ég opna og loka hátíðinni.“ Það er mikil spenna í loftinu fyrir afmælinu en undirbúningurinn gengur eins og í sögu. „Vinir mínir eru að sjá um skipulagninguna með mér og Krummi á Dillon er búinn að vera sjúklega næs. Svo eru allar hljómsveitirnar búnar að vera ótrúlega þægilegar með þetta. Þetta verður átta tíma veisla en ég er ekki að ætlast til að allir verði allan tímann.“ Hljómsveitirnar sem koma fram eru Four Leaves Left, Finnbogi Örn, Snowed In, Churchhouse Creepers, Rythmatik, Andri Ívarsson, Yolo Swaggins And The Fellatio of the Bling, Panos from Komodo, In the Company of Men, Pink Street Boys, Mannveira, Great Grief, Misþyrming og Damagés. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 21. september.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Sjá meira