Juncker vill sameiginlegan her og ókeypis þráðlaust net fyrir alla Atli Ísleifsson skrifar 14. september 2016 10:10 Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Vísir/AFP
Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, vill að ESB komi sér upp sínum eigin hernaðarlegu höfuðstöðvum og vinni að því að koma upp sameiginlegum her. Juncker fór yfir víðan völl í ræðu sinni í Evrópuþinginu í morgun þar sem hann fór yfir stöðu sambandsins (State of the European Union). Juncker sagði ESB nú vinna að því með Atlantshafsbandalaginu að koma á innra samstarfi sem stangist ekki á við hernaðarsamstarf Evrópuríkja og ríkja Norður-Ameríku innan NATO. Sagði hann það vera skynsamlegt í efnahagslegu tilliti að sameina kraftana og fyrir árslok yrði lagt til að stofnaður yfir samevrópskur varnarsjóður sem muni fjármagna og fjárfesta í þróun á þessu sviði. „Það mikilvægasta í Evrópu er að halda friðinn. Við eigum í stöðugum átökum, en við berjumst með orðum, ekki í skotgröfunum.“ Juncker sagðist í ræðu sinni jafnframt harma ákvörðun Breta um að segja skilið við Evrópusambandið. Tilurð sambandsins væri þó ekki ógnað. Hann sagði einnig að farið sé að bera á samstöðu þegar kæmi að málefnum flóttamanna. Þá sagði hann nauðsynlegt að tryggja öryggi flóttabarna. Juncker sagði sambandið verða að vera með skýrar reglur um hver geti komið til ríkja sambandsins og að nauðsynlegt sé að skrá niður hverjir haldi yfir landamærin, hvenær, hvaðan þeir koma og í hvaða tilgangi. Í frétt DR er einnig haft eftir Juncker að allir bæir í aðildarríkjunum skuli njóta ókeypis þráðlauss nets fyrir árið 2020.
Mest lesið Landsmenn allir harmi slegnir Innlent Dauðbrá og varð öskureið þegar hún sá sjálfa sig í gervigreindarmyndbandi Innlent „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Innlent Tillaga um að stækka Hótel Flatey felld Innlent Sósíalistar og Rússlandsvinir undir eitt þak Innlent Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Mikilvægt að nota réttu orðin sem séu píka og typpi Innlent Fjögurra daga Njáluhátíð sett á Hvolsvelli í kvöld Innlent Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Innlent Fleiri fréttir Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Sneru aftur og er fylgt af lögreglu svo þeir flýi ekki Flytja eina frægustu kirkju Svíþjóðar um fimm kílómetra Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Hafa afturkallað yfir 6.000 námsmannaleyfi Sjá meira