Obama heitir frekari þvingunum Samúel Karl Ólason skrifar 9. september 2016 22:11 Barack Obama, forseti Bandaríkjanna. Vísir/EPA
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur heitið frekari viðskiptaþvingunum gegn Norður-Kóreu vegna tilrauna þeirra með kjarnorkuvopn. Hann segir að Bandaríkin muni aldrei sætta sig við að einræðisríkið búi yfir kjarnorkuvopnum. Norður-Kórea sprengdi í nótt kjarnorkusprengju í fimmta sinn á tíu árum og er talið að sprengjan hafi verið sú stærsta hingað til. Þá hefur ríkið framkvæmt fjölmargar tilraunir með eldflaugar á undanförnum mánuðum og halda yfirvöld í Pyongyang því fram að vísindamönnum þeirra hafi tekist að minnka kjarnorkuvopn ríkisins svo að mögulegt sé að koma þeim fyrir í eldflaugum. Þeir segja slíkt vopn hafa verið sprengt í nótt.Sjá einnig: Öryggisráðið kallað saman vegna kjarnorkutilraunar N-KóreuObama sagðist í dag hafa rætt við leiðtoga Suður-Kóreu og Japan og að ríkin þrjú myndu vinna með öðrum ríkjum að „þýðingarmiklum skrefum“, þar á meðal frekari viðskiptaþvingunum til að koma yfirvöldum Norður-Kóreu í skilning um að ólögleg og hættuleg háttsemi sem þessi hefði afleiðingar. Viðskiptaþvinganir hafa fylgt öllum kjarnorkutilraununum fimm, en það virðist ekki hafa dregið úr metnaði Norður-Kóreu. Sérfræðingar segja kraft sprengingarinnar í nótt hafa jafnast á við 10 kílótonna sprengjuna sem Bandaríkin vörpuðu á Hiroshima árið 1945.
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Innlent Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Innlent Fleiri fréttir „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Sjá meira