Segja hunda skilja eigendur sína Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 30. ágúst 2016 13:56 „Segðu sís“ Vísir/Getty
Vísindamenn hafa fundið vísbendingar sem styðja það sem margir eigendur hunda kannast líklega við. Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að hundar skilji í raun og og veru sumt af því sem sagt er við þá. Ungverskir vísindamenn skönnuðu heila hunda á meðan hundarnir hlýddu á þjálfara sína tala til þess að ákvarða hvaða hluti heilans væri virkur á meðan. Niðurstöðurnar, sem gefnar voru út í vísindatímaritinu Science, gefa til kynna að hundar vinni úr orðum með vinstra heilahvelinu en það hægra vinni úr hljómfalli orðanna líkt og hjá manninum. Enn fremur benda niðurstöðurnar til þess að hundar meðtaki aðeins þegar þeim er hrósað ef bæði orðið sem notað er og hljómfallið er jákvætt. Merkingarlaus orð sögð á hvetjandi hátt höfðu ekki sömu áhrif. „Heilar hunda skynja bæði það sem við segjum og hvernig við segjum það,“ sagði Attila Andics, taugavísindamaður við Lorand-háskólann í Budapest og einn af þeim sem stóð að rannsókninni. „Hrós virkar sem umbun aðeins þegar merking og hljómfall orðanna stemmir.“ Andics bætir því við að niðurstöðurnar bendi til þess að hæfileiki dýrategunda til þess að meðtaka tungumál hafi þróast mun fyrr en áður var talið. Það sem skilji mannkynið frá öðrum dýrategundum sé uppfinning orða. „Getan til þess að meðtaka orð var áður talið einskorðast við mannkynið en nú höfum komist að því að við deilum þessum hæfileika með öðrum dýrum,“ sagði Andics sem bætir við að líklegt sé að önnur dýr hafi hæfileikann til þess að skilja menn en erfitt sé að rannsaka það vegna þess að fá dýr sýni tungumáli mannkynsins jafn mikinn áhuga og hundar.
Mest lesið Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Innlent Bíll konunnar sást á upptöku Innlent Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Innlent Landsmenn allir harmi slegnir Innlent Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Erlent Tuttugu milljónir í bankanum og kona í gæsluvarðhaldi Innlent Aðstoðar allt að fimmtán ára gömul börn að hætta með bleyju Innlent Leituðu ítrekað í geymslur stofnunar Innlent „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Innlent Dauðbrá og varð öskureið þegar hún sá sjálfa sig í gervigreindarmyndbandi Innlent Fleiri fréttir Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu Sjá meira