Corbyn mælist með öruggt forskot á Smith Atli Ísleifsson skrifar 31. ágúst 2016 14:05 Jeremy Corbyn tók mið formannsembættinu í breska Verkamannaflokknum á síðasta ári. Vísir/AFP
Ný skoðanakönnun YouGov bendir til þess að Jeremy Corbyn, formaður breska Verkamannaflokksins, muni sigra örugglega í formannskjöri flokksins sem nú stendur yfir. Corbyn mælist með 62 prósent fylgi á meðal flokksmanna en Owen Smith 38 prósent. Könnunin var gerð fyrir breska blaðið Times. Corbyn virðist njóta mikils stuðnings á meðal flokksmanna, þó að fjöldi þingmanna hafi lýst yfir efasemdum um að hann sé rétti maðurinn til að leiða flokkinn. Corbyn var kjörinn formaður flokksins á síðasta ári í kjölfar afsagnar Ed Miliband. Corbyn var þá kjörinn með 59,5 prósent atkvæða. Könnunin bendir þó til þess að Corbyn njóti mest stuðnings á meðal nýskráðra flokksmanna. Flokksmenn sem skráðir voru fyrir maí 2015 – það er sá hópur sem tryggði Corbyn formannsembættið á síðasta ári – eru nú líklegri til að greiða atkvæði með Smith. Þannig segjast 68 prósent þeirra vilja sjá Smith sem leiðtoga flokksins. Í frétt Independent kemur fram að 640 þúsund flokksmenn megi greiða atkvæði í formannskjörinu sem hófst í síðustu viku. Niðurstöður kjörsins munu liggja fyrir á árlegu landsþingi flokksins sem fram fer dagana 25. til 28. september. Owen Smith hefur átt sæti á breska þinginu frá árinu 2010.
Tengdar fréttir Hiti í kappræðum formannsefna Verkamannaflokksins Owen Smith og Jeremy Corbyn bjóða sig fram til formanns Verkamannaflokksins. Smith sagðist í kappræðum vilja ræða við Íslamska ríkið og sagði Corbyn hugmyndina vanhugsaða. Formannskjörið hefur einkennst af vandræðagangi. 18. ágúst 2016 12:00 Mest lesið Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Erlent Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Innlent Fundu kannabisplöntur við húsleit Innlent Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Innlent Fleiri fréttir Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Sjá meira
Hiti í kappræðum formannsefna Verkamannaflokksins Owen Smith og Jeremy Corbyn bjóða sig fram til formanns Verkamannaflokksins. Smith sagðist í kappræðum vilja ræða við Íslamska ríkið og sagði Corbyn hugmyndina vanhugsaða. Formannskjörið hefur einkennst af vandræðagangi. 18. ágúst 2016 12:00