Eftirskjálftar viðhalda ótta guðsteinn bjarnason skrifar 27. ágúst 2016 07:00 Þúsundir hermanna, slökkviliðsmanna og hjálparstarfsmanna hafa unnið hörðum höndum að því að leita að fólki í rústunum. Fréttablaðið/EPA
Snemma í gærmorgun kom harður eftirskjálfti, 4,7 stig að stærð, á hamfarasvæðinu á Mið-Ítalíu þar sem björgunarfólk hefur unnið hörðum höndum síðan á miðvikudag. Skjálftinn á miðvikudag kostaði 268 manns lífið hið minnsta og 400 særðust að auki. Hundruð eftirskjálfta hafa torveldað björgunarstörf og viðhaldið ótta almennings á svæðinu. Matteo Renzi forsætisráðherra lýsti í gær yfir neyðarástandi á þeim svæðum, sem verst urðu úti. Jafnframt hét hann því að ríkið muni verja 50 milljónum evra til enduruppbyggingar á svæðinu. Það jafnast á við ríflega 6,5 milljarða króna. Ítalíustjórn hefur einnig ákveðið að fella niður skatta þeirra sem búa á svæðinu. Ítalskir fjölmiðlar hafa harðlega gagnrýnt vinnubrögð við byggingar húsa, þar sem staðlar eru sagðir ófullkomnir og reglum auk þess ekki fylgt. Fullyrt er að sum þeirra húsa, sem hrundu í jarðskjálftanum, hafi verið endurnýjuð fyrir skömmu. Renzi forsætisráðherra svarar því til að það sé fáránlegt að halda að nokkurn tímann verði hægt að byggja hús á Ítalíu sem myndu standast alla jarðskjálfta. Sérfræðingar telja að um 70 prósent húsa á Ítalíu standist ekki þær kröfur um jarðskjálftaþol sem gerðar eru í reglugerðum. Síðan á miðvikudag hefur björgunarfólki tekist að bjarga rúmlega 200 manns á lífi úr rústunum. Ólíklegt þykir að fleiri muni finnast á lífi eftir svo langan tíma. Fjórir bæir í Appennínafjöllunum urðu verst úti í skjálftanum: Amatrice, Accumoli, Arquata del Tronto og Pescara del Tronto. Þeir eru allir á litlu svæði um það bil 100 til 140 kílómetra norðaustur af Róm. Flestir þeirra sem létust voru í Amatrice, alls 193. Þar í bæ búa um 2.500 manns. Jarðskjálftar eru algengir á þessu svæði. Árið 2009 létu meira en 300 manns lífið í bænum L'Aquila, sem er skammt suður af upptökum skjálftans á miðvikudag.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Mest lesið Brotið á barni með því að loka það inni í einveruherbergi Innlent Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Innlent Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Innlent Leitar kofans sem hvarf í heilu lagi Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Veður Skiptar skoðanir um stækkun Þjóðleikhússins Innlent „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Innlent Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Þýska velferðarríkið standi ekki lengur undir sér Erlent Fleiri fréttir Þýska velferðarríkið standi ekki lengur undir sér Á sjöunda tug drepin í stórtækum árásum Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Sjá meira