Grunaður um að hafa drepið mæðgin í Kirkenes Atli Ísleifsson skrifar 29. ágúst 2016 11:04 Frá Kirkenes. Vísir/Getty
Tólf ára drengur og móðir hans fundust myrt í íbúð í Kirkenes í Norður-Noregi í morgun. Lögregla hefur stjúpföður drengsins grunaðan um morðin, en sá liggur nú þungt haldinn á sjúkrahúsi í Tromsö. Lögregla í Finnmörku staðfesti í morgun að 37 ára kona og tólf ára sonur hennar hafi fallið í skotárásinni. Eiginmaður konunnar og stjúpfaðir drengsins er grunaður um verknaðinn og hefur verið handtekinn. Torstein Pettersen, talsmaður lögreglunnar, segir að skotvopn hafi fundist í íbúðinni sem um ræðir. „Við höfum handtekið mann vegna málsins og liggur hann inni á Háskólasjúkrahúsinu í Tromsö. Maðurinn er alvarlega særður, en ástand hans er stöðugt og er hann ekki í lífshættu.“ Hann segir ekki hægt að útiloka að fleiri hafi verið í íbúðinni þó að nú sé ekkert sem bendi til þess. Í frétt Verdens Gang er haft eftir Hans Møllebakken, lögreglustjóra í Kirkenes, að konan hafi átt fjölbura sem bjuggu í íbúðinni. Hann segir að um erlenda ríkisborgara sé að ræða og sé enn verið að hafa uppi á nánustu ættingjum. Lögreglu barst tilkynning um hávært rifrildi í íbúðinni klukkan 4:13 að staðartíma og fundust maðurinn, konan og drengurinn með skotsár þegar lögregla mætti á staðinn. Tove Korsnes, rektor barnaskólans í Kirkenes, staðfestir að drengurinn hafi stundað nám við skólann. Hafi kennarar við skólann upplýst aðra nemendur um málið í morgun.
Mest lesið Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Innlent Brotið á barni með því að loka það inni í einveruherbergi Innlent Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Innlent Leitar kofans sem hvarf í heilu lagi Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Veður „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Innlent Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísar Klöru Innlent Þrjár líkamsárásir og yfir tuttugu ungmenni í athvarf Innlent Fleiri fréttir Á sjöunda tug drepin í stórtækum árásum Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Sjá meira