Telja frumvarp fela í sér grundvallarbreytingu Sveinn Arnarsson skrifar 11. ágúst 2016 07:00 Líklegt þykir að LÍN frumvarpið verði bitbein fylkinga á þingi. vísir/valli
Bandalag háskólamanna (BHM) gagnrýnir frumvarp til laga um námslán og námsstyrki sem liggur fyrir þinginu. Segir það grundvallarbreytingu á eðli námslánakerfisins ef hætt sé að tekjutengja endurgreiðslu lána. BHM er samtök 28 stéttarfélaga háskólamenntaðra með um ellefu þúsund félagsmenn, jafnt hjá hinu opinbera sem og í einkageiranum. „Við höfum áhyggjur af því að láglaunastéttir standi veikar að vígi en aðrir þegar kemur að endurgreiðslu námslána þar sem tekjutengingin er afnumin,“ segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM. „Við hvetjum til þess að það fari fram frekari umræða um málefnið svo tryggt sé að greiðslubyrði háskólamenntaðra einstaklinga verði áfram sanngjörn þegar kemur að námslánum.“Frumvarp menntamálaráðherra var samþykkt í ríkisstjórn í lok maí. Þar kemur fram að námslánatími muni styttast og tekjutenging verði afnumin. Einnig muni endurgreiðsla lána hefjast fyrr og vextir á þeim munu hækka. Á móti muni mánaðarlegir styrkir til námsmanna upp á allt að 65 þúsund krónur á mánuði koma í vasa námsmanna að uppfylltum skilyrðum um að námsframvinda sé eðlileg.Unnur Brá Konráðsdóttirvísir/vilhelmUnnur Brá Konráðsdóttir, formaður allsherjar- og menntamálanefndar þingsins, segist vonandi fá málið sem fyrst inn á borð nefndarinnar svo hægt sé að vinna það áfram. „Ég tel líklegt að ráðherra mæli fyrir frumvarpinu á fyrstu dögum þingsins svo það geti komið til þinglegrar meðferðar í nefndinni. Svo vonum við bara að það gangi vel að vinna það áfram,“ segir Unnur Brá. Einnig er opnað fyrir það í frumvarpsdrögum að rekstur sjóðsins sé færður úr höndum hins opinbera og settur á markað. Sú hugmynd fellur í grýttan jarðveg innan BHM. „Það er okkar mat að það sé ekki lántakendum í hag að færa afgreiðslu námslána íslenskra stúdenta og færa hana í hendur einkafyrirtækja. Einnig er óljóst hvernig það mun spara ríkissjóði fjármagn þegar til lengri tíma er litið,“ segir Þórunn.Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Erlent Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Erlent Fleiri fréttir Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Sjá meira