Innlent

Karl og kona í haldi lögreglu vegna skotárásarinnar í Breiðholti

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Eins er enn leitað auk þess sem lögregla lýsir eftir rauðri Toyota Yaris bifreið.
Eins er enn leitað auk þess sem lögregla lýsir eftir rauðri Toyota Yaris bifreið. Vísir/Eyþór Árnason
Tveir eru í haldi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjölfar aðgerða hennar og sérsveitar ríkislögreglustjóra í Fellahverfi í Breiðholti í gærkvöld og nótt.

Um er að ræða karl og konu, en maðurinn er grunaður um að vera annar tveggja sem stóð að skotárásinni. Hins er enn leitað, sem og þeirra sem voru í ökutækinu sem skotið var á.

Það er rauður Toyota Yaris, en viðbúið er að rúður á hægri hlið bílsins séu brotnar. Bíllinn er enn ófundinn, en þeir sem vita hvar hann er niðurkominn eru beðnir um að hafa samband við lögreglu.

Lögreglan hvetur hinn manninn sem er grunaður um skotárásina til að gefa sig fram, sem og fólkið sem var í bílnum sem skotið var á. Þeir sem búa yfir upplýsingum um þá sem leitað er að eru beðnir um að hafa samband við lögreglu.

Vitni segja að hópur manna, allt að 30-50, hafði safnast saman fyrir utan söluturninn í Iðufelli í gær og þar hafi verið mikil um læti áður en heljarinnar slagsmál brutust út. Vitni segjast hafa séð poka fullan af vopnum.

Hópurinn dreifðist í allar áttir eftir að skotið var tveimur skotum úr haglabyssu í átt að bifreið. Lögregla mætti á svæðið stuttu síðar og hafa sérsveitarmenn og lögreglumenn leitað á svæðinu að byssumanninum og öðrum sem komu að áflogunum.

Lögreglan var á staðnum fram yfir miðnætti við rannsókn málsins og leitaði gaumgæfilega í hverfinu að byssumanninum eða öðrum sem tengdust áflogunum.


Tengdar fréttir

Telja sig þekkja byssumennina

Lögreglan leitar nú að tveimur mönnum sem grunaðir eru um skotárásina í Breiðholti í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×