Stjórnarandstaðan um vinnufrið á þingi: „Það varð kúvending þegar Sigmundur Davíð steig til hliðar“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 7. ágúst 2016 11:37 „
Það varð kúvending í þinginu þegar Sigmundur Davíð steig til hliðar. Við fundum öll fyrir því að það gjörbreytti vinnuandanum milli stjórnar og stjórnarandstöðu og trúnaðinum sem var á milli manna,“ sagði Svandís Svavarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs er hún var spurð að því hvort að breyting á störfum þingsins eftir brotthvarf Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fyrrverandi forsætisráðherra í vor. Svandís var gestur Páls Magnússonar á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun ásamt öðrum leiðtogum stjórnarandstöðunnar, þeim Birgittu Jónsdóttur Pírata, Óttari Proppé formanni Bjartrar framtíðar og Oddnýju Harðardóttur, formanni Samfylkingarinnar. Hlusta má á samræðurnar í spilaranum hér fyrir ofan. Tóku þau öll undir orð Svandísar um að andrúmsloftið á þinginu hafi batnað eftir að Sigmundur Davíð sagði af sér embætti forsætisráðherra og hvarf af þingi í kjölfar þeirra uppljóstrana sem komu fram í Panama-skjölunum. „Andrúmsloftið varð bara afslappaðra þegar að Sigurður Ingi tók við. Ég þekki hann ágætlega, hann er oddviti í mínu kjördæmi og það er gott að ræða við hann þó maður sé ekki sammála honum en það er þó samtal. Það er miklu betra í pólitík að fólk geti talað saman til að finna sáttaflöt,“ sagði Oddný. Svandís bætti einnig við samstarfið á þinginu hafi mögulega gengið betur en ríkisstjórninni hafi látið sig þorað að dreyma um og mikilvæg málefni hafi verið kláruð í sátt og samlyndi. „Ég tel að þetta hafi gengið mun hraðar en að meira segja ríkisstjórnin hafi látið sig dreyma um vegna þess að fólk var að vinna af heilindum. Við kláruðum ný útlendingalög, millidómstig, stór mál sem tengjast húsnæðismálum með þverpólítískri sátt án andstöðu. Það er algjörlega ný staða,“ sagði Svandís og kallaði eftir því að stjórnarandstaðan og stjórn settust niður til a ákveða hvaða mál væri hægt að ræða á haustþingi svo negla mætti niður kjördag fyrir komandi alþingiskosningar sem boðaðar hafa verið í haust.Enginn þolinmæði lengur fyrir óheiðarlegum og hrokafullum stjórnmálum Birgitta Jónsdóttir var spurð að því hvort að hér ríkti pólitísk þýða eftir brotthvarf Sigmundar Davíðs en setti hún þó nokkra fyrirvara það. „Stundum upplifir maður í pólítik að oft er gott logn á undan miklum stormi þannig að ég tel að það geti brugðið til allskonar óveðra núna,“ sagði Birgitta sem tók þó undir orð Svandísar og Oddnýjar um að andrúmsloftið hefði batnað til muna eftir brotthvarf Sigmundar. „Ég er alveg sammála að það hafi lagast mjög andrúmsloftið á þingi þegar hægt var að hefja samtalið og það er mjög gott,“ sagði Birgitta. Óttar Proppé taldi að augljóst væri að þingheimur hafi áttað sig á því að engin þolinmæði væri lengur í þjóðfélaginu fyrir ákveðinn tegund af stjórnmálum. „Það sem breytist í vor er að það er augljóst að það er enginn þolinmæði lengur fyrir óheiðarlegum, hrokafullum stjórnmálum þar sem verið er að troða ofan á stjórnarandstæðinga eða aðra. Um þetta voru allir mjög meðvitaðir í þinghúsinu. Það ýtti á það að við unnum betur saman en á sama tíma unnum við að málum sem við gátum unnið saman að.“ Sigmundur Davíð hefur boðað endurkomu sína í stjórnmálin og mun sitja á komandi þingi. Hann er formaður Framsóknarflokksins en fréttastofa hefur heimildir fyrir því að innan þingflokks Framsóknarflokksins hafi verið átök um það hvort Sigmundur Davíð eigi að leiða flokkinn í kosningunum.
Mest lesið Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Fleiri fréttir Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Sjá meira