Sport

Tebow vill komast í hafnaboltadeildina

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tebow gerir hið svokallaða Tebowing sem sló í gegn á heimsvísu. Tók við af plankinu á sínum tíma.
Tebow gerir hið svokallaða Tebowing sem sló í gegn á heimsvísu. Tók við af plankinu á sínum tíma. vísir/getty
Hinn ótrúlegi vinsæli bandaríski íþróttamaður, Tim Tebow, er ekki af baki dottinn þó svo liðin í NFL-deildinni vilji ekkert af honum vita.

Hann hefur því ákveðið að beina spjótum sínum að MLS-hafnaboltadeildinni.

Tebow er búinn að æfa hafnabolta af krafti síðasta árið og ætlar að halda opna æfingu fyrir liðin í deildinni síðar í mánuðinum.

Tebow er mikill íþróttamaður en hann hefur ekki spilað íþróttina síðan árið 2005. Hann var í stjörnuliði Flórída-ríkis er hann var að spila hafnabolta í menntaskóla.

Tebow verður 29 ára gamall um næstu helgi. Hann sló í gegn með Denver Broncos í NFL-deildinni en fékk svo aldrei aftur almennilegt tækifæri. Í dag vinnur hann sem sjónvarpsmaður hjá ESPN.


Tengdar fréttir

Þegar Tebow hitti Jesús

Hinn heittrúaði Tim Tebow mátti sætta sig við tap í gær þegar Tom Brady kom í heimsókn á Mile High í Denver.

Tebowing hefur tekið við af plankinu

Vinsældir leikstjórnandans og trúboðans Tim Tebow ná út um allan heim. Það heitasta í heiminum núna er svokallað "Tebowing" og má segja að það sé búið að leysa plankið af hólmi.

Tebow neitaði að spila | Á förum frá Jets

Tímabilið hefur verið erfitt fyrir undrabarnið og Guðsmanninn Tim Tebow. Hann var fenginn til NY Jets fyrir tímabilið en hefur nánast ekkert verið notaður þó svo aðalleikstjórnandi liðsins, Mark Sanchez, hafi ekkert getað.

Tebow tryggði Denver sigur á Jets

Leikstjórnandinn Tim Tebow sá sjálfur um að tryggja Denver Broncos sigur á New York Jets með snertimarki á lokamínútu leiksins. Lokatölur voru 17-13.

Tebow-reglan

Á síðasta ári settu yfirmenn háskólaíþróttanna nýja reglu í lagasafn sitt. Hún er aldrei kölluð annað en "Tebow-reglan“ enda sett á út af Tim Tebow.

Ótrúlegar trúartengdar tilviljanir

Uppgangur trúboðans og leikstjórnandans Tim Tebow hjá Denver Broncos er lyginni líkastur. Tebow framkvæmdi enn eitt kraftaverkið um helgina og er enginn skortur á trúartengdum tilviljunum eftir þennan ótrúlega leik hjá manninum sem byrjað er að kalla Messías.

Tebow ofmetnasti leikmaður NFL-deildarinnar

Í lok síðasta tímabils var Tim Tebow að vinna leik í úrslitakeppninni með Denver Broncos en síðan hefur hann mátt sætta sig við bekkjarsetu hjá NY Jets. Félagar hans í NFL-deildinni hafa misst mikið álit á leikmanninum.

Stefnir í fullkomið tímabil hjá Packers - Tebow einnig óstöðvandi

Staðan í NFL-deildinni breyttist lítið í gær. Green Bay stóðst risapróf gegn NY Giants þar sem Aaron Rodgers, leikstórnandi Green Bay, bauð upp á enn eina ótrúlegu frammistöðuna. Hann keyrði liðið upp allan völlinn á 58 sekúndum og Packers vann leikinn með vallarmarki um leið og leiktíminn rann út.

Chuck Norris elskar Tim Tebow

Goðsögnin Chuck Norris er mikill NFL-aðdáandi. Svo mikill að hann hefur skrifað gríðarlangan pistil til varnar Tim Tebow sem hann hreinlega elskar.

Tebow heldur áfram að gera kraftaverk - Giants með mikilvægan sigur

Kraftaverkamaðurinn Tim Tebow, leikstjórnandi Denver Broncos, heldur áfram að troða upp í gagnrýnendur. Í gær vann Tebow enn og aftur í framlengdum leik en þetta var þriðja sigur Tebow og félaga í framlengingu í vetur. Það er met í NFL-deildinni á einu tímabili.

Messías lentur í Klettafjöllunum

NFL-leikstjórnandinn Tim Tebow er mjög óvænt orðinn ein stærsta stjarnan í bandarísku íþróttalífi. Þessi strangtrúaði drengur hefur þaggað niður í nær öllum sérfræðingum. Þeim finnst flestum að hann geti ekki neitt. Þrátt fyrir það framkallar Tebow kraftaverk í nær hverjum leik og getur ekki hætt að vinna.

LeBron James: Ég held með Tim Tebow

nbaLeBron James er mikill áhugamaður um amerískan fótbolta og hann er mikill stuðningsmaður Dallas Cowboys. Þar sem að hans menn komust ekki í úrslitakeppnina þá ætlar James að halda með Tim Tebow og félögum hans í Denver Broncos í úrslitakeppni NFL-deildarinnar í ár.

NFL: Tebow tapaði - Denver réð ekki við Tom Brady og félaga

Sigurganga Tim Tebow og liðsfélaga hans í Denver Broncos í ameríska fótboltanum endaði í gær þegar liðið tapaði 23-41 á heimavelli á móti New England Patriots. Topplið Green Bay Packers tapaði líka sínum fyrsta leik á tímabilinu.

Tebow setti met á Twitter | Ótrúlegt sjónvarpsáhorf

Aðdráttarafl leikstjórnanda Denver Broncos, Tim Tebow, er með hreinum ólíkindum en uppgangur þessa unga drengs hefur verið lygilegur. Rúmlega 42 milljónir fylgdust með leik Broncos og Pittsburgh Steelers í Bandaríkjunum um helgina sem er stórkostlegt áhorf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×