Grastoppar, skítur og drulla víða um miðborgina Jóhann K. Jóhannsson skrifar 9. ágúst 2016 19:30
Formaður Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur er ósáttur við umhirðu og umgengni í miðborginni og segir að stjórnendur Reykjavíkurborgar verði að taka sig á til þess að halda miðborginni aðlaðandi fyrir ferðamenn sem hingað koma. Fréttastofan þurfti ekki að leita langt á ferð sinni um miðborgina í dag til þess að finna svæði sem væru illa hirt og sóðaleg. Formaður íbúasamtaka í miðborg Reykjavíkur er orðinn þreyttur á sóðaskap þeirra sem um miðborgina fara, veggjakortara, sem fá að því er virðist, að leika lausum hala og umhirðu Reykjavíkurborgar á áberandi stöðum í Reykjavík. Hann segir einnig að aukinn ferðamannastraumur og aukinn sóðaskapur í miðborginn haldist ekki í hendur. „Það er mikill munur á til dæmis Sólavörðustígnum og hliðargötunum í kring. Maður sér það alveg að honum er haldið þokkalega hreinum, en við þurfum ekki að fara langt inn eftir Bergstaðastrætinu til þess að finna grastoppa, skít og drullu. það er ekki nóg að vera með vélsópa sem keyra hérna um göturnar og komast ekki að fyrir bílum. Það þyrftu líka að vera bara menn á fæti með tunnu og fægiskóflu og kúst eins og var í gamladaga,“ segir Benóný Ægisson, formaður Íbúasamtaka í miðborg Reykjavíkur. Benóný segir að íbúasamtökin hafi kynnt sér hvaða fyrirkomulag sé á umhirðu Borgarinnar í miðbænum. „Síðan er vorhreingerning og það er hausthreingerning. Það er liðin tíð að skólakrakkar, unglingar og ungmenni séu að vinna við þetta allt sumarið,“ segir Benóný. Víða í miðborginni eru stórar og miklar framkvæmdir og segir formaður íbúasamtakanna í miðborginni að það séu svona svæði sem fái að standa óáreitt vegna þeirra framkvæmda. „Þetta er mikið í kringum byggingaframkvæmdir. Ef þú sérð einhverja holu og eitthvað ófrágengið þá ert þú ekkert sjálfur að ganga vel um. Þannig að það bíður einginlega upp á sóðaskap að það sé ekki gengið almennilega um þessi byggingarsvæði,“ segir Benóný. Benóný segir að reglulega sé þetta rætt innan samtakana og að menn hafi áhyggjur af því að ekki verði bætt úr. „Við höfum ekki kannski beint ályktað um þetta nema við skoruðum á borgarstjórn að taka samræður við okkur vegna þess að þetta ástand eins og það er núna er ekki nógu gott. Það þarf að samræma aðgerðir allra þeirra sem koma að þessu máli. Borgarinnar, íbúanna, rekstaraðilanna og ferðaþjónustunnar til þess að þetta verði að einhverju viti. Mér finnst eins og við séum að fara alltof hratt inn í þetta. Þetta eru svo miklir vaxtarverkir sem fylgja þessu að þetta verður að skoðast,“ segir Benóný
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira