Fundinn sekur um nauðgun á sænskri konu í London árið 1984 Atli Ísleifsson skrifar 31. júlí 2016 11:32 Tilkynnt verður um ákvörðun refsingar þann 2. september næstkomandi. Vísir/Getty
Dómstóll í Bretlandi hefur fundið fimmtugan karlmann sekan af ákæru um nauðgun á sænskri konu sem hann framdi í almenningsgarði í London árið 1984, eða fyrir tæpum 32 árum síðan.SVT greinir frá því að konan, sem þá var nítján ára gömul, hafi starfað sem au pair í bresku höfuðborginni í sex vikur þegar ráðist var á hana í desember 1984 og henni nauðgað í Hendon Park í norðvesturhluta London. Enginn var handtekinn vegna málsins og sneri konan aftur til Svíþjóðar eftir atvikið. „Svo kann að virðast að þetta hafi gerst fyrir löngu síðan, en konunni finnst líkt og þetta hafa gerst í gær. Hún hefur lengi beðið eftir réttlæti,“ sagði saksóknarinn Samantha Cohen á meðan á réttarhöldunum stóð. Árið 1998 voru sýni úr sæði árásarmannsins rannsökuð á ný en engin samsvörun fannst í gagnabanka lögreglu. Það gerðist hins vegar fyrir þremur árum þegar lífsýni mannsins, sem hafði áður verið sakfelldur fyrir manndráp, voru skráð í gagnabankann. „Líkurnar á að sæðið komi úr öðrum en árásarmanninum eru einn á móti milljarði,“ sagði Cohen. Þessu til viðbótar er vitað að maðurinn bjó á þessum tíma í grennd við Hendon Park og passaði við lýsingar fórnarlambsins. Tilkynnt verður um ákvörðun refsingar þann 2. september næstkomandi. Eftir að rannsókn á málinu hófst á ný tókst lögreglu í Bretlandi að hafa uppi á konunni og hefur haldið henni upplýstri um framgang málsins. „Það var mjög gefandi að geta hitt fórnarlambið og greint henni frá því, eftir öll þessi ár, að árásarmaðurinn sem réðst með svo grimmilegum hætti á hana, hafi verið fundinn og hann handtekinn,“ segir lögreglustjórinn Gary Farrelly í yfirlýsingu.
Mest lesið Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Ljóst hvar sólin verður um Versló og hvar ekki Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Innlent Fleiri fréttir Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Sjá meira