Koike fyrsta konan til að verða kjörin ríkisstjóri Tokýó Atli Ísleifsson skrifar 31. júlí 2016 12:08 Yuriko Koike, fyrrverandi varnarmálaráðherra Japans. Vísir/AFP
Yuriko Koike, fyrrverandi varnarmálaráðherra Japans, var í dag kjörin ríkisstjóri japönsku höfuðborgarinnar Tókýó. Koike verður fyrsta konan til að gegna embættinu. Japanskir fjölmiðlar birtu útgönguspár sínar um leið og kjörstöðum var lokað og benda þær til sigurs Koike. Eitt af helstu verkefnum nýs ríkisstjóra Tókýó verður að takast á við þau fjárhagsvandræði sem hafa einkennt undirbúning Ólympíuleikanna sem fram fara í Tókýó að fjórum árum liðnum. Hneykslismál tengd leikunum eru ástæða afsagna síðustu tveggja ríkisstjóra, en alls sóttist 21 frambjóðandi eftir því að stjórna Tókýó og fjölda annarra nágrannaborga sem heyra undir stjórnsýslueininguna. Í frétt BBC segir að boðað hafi verið til kjörsins eftir að fyrrverandi ríkisstjórinn, Yoichi Masuzoe, sagði af sér í kjölfar ásakana um að hann hafi nýtt opinbera sjóði til að fjármagna einkaneyslu sína. Koike mun sem ríkisstjóri ferðast til Ríó de Janeiro og taka við Ólympíufánanum úr hendi borgarstjóra Ríó á lokahátíð Ólympíuleikanna sem hefjast þann 5. ágúst.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Sjá meira