Það verður gaman að spila við Gylfa í fyrsta leik Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. júlí 2016 06:00 Jóhann Berg Guðmundsson með Gylfa Þór Sigurðssyni, Jóni Daða Böðvarssyni og Arnóri Ingva Traustasyni. Vísir/AFP „
Ég hef oft sagt að draumurinn sé að spila í ensku úrvalsdeildinni og nú er ég kominn þangað þannig að það er auðvitað hægt að segja að draumurinn sé að rætast,“ sagði landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson í samtali við Fréttablaðið í gær, skömmu eftir að fréttir bárust af því að hann væri búinn að semja við Burnley. Jóhann Berg segir að félagið og áhuginn sem það sýndi á að fá hann hafi heillað. „Þetta var alltaf fyrsti kostur. Ég ákvað að stökkva á tækifærið og líst mjög vel á þetta. Þeir hafa verið að skoða mig frá því í desember. Eftir EM ákváðu þeir svo að keyra á þetta. Það verður gaman fyrir mig að spreyta mig í þessari deild,“ sagði Jóhann Berg sem vildi lítið tjá sig um áhuga annarra liða. Jóhann Berg segist hlakka til að spila fyrir knattspyrnustjórann Sean Dyche sem þykir mjög fær í sínu starfi og hefur komið Burnley tvisvar upp í ensku úrvalsdeildina. „Hann er skemmtilegur maður. Hann vill að sínir menn gefi 120% í allar æfingar og alla leiki. Mín fyrstu kynni af honum eru mjög jákvæð og ég er á því að hann geri mig að betri leikmanni,“ sagði Jóhann Berg sem mætir væntanlega samherja sínum úr íslenska landsliðinu, Gylfa Þór Sigurðssyni, þegar Burnley tekur á móti Swansea City í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar laugardaginn 13.?ágúst næstkomandi. „Það verður gaman að spila við hann í fyrsta leik. Þeir mæta á Turf Moor og það verður ekki auðvelt fyrir þá,“ sagði Jóhann Berg en Burnley tapaði aðeins tveimur deildarleikjum á heimavelli á síðasta tímabili. ingvithor@365.is
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu mörkin þegar Real tryggði sér Evrópubikarinn Fótbolti „Við erum allavega ekki að fara að sofa“ Fótbolti Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal Enski boltinn Slakur árangur og samskiptaleysi ástæðan fyrir brottvikningu Brynjars Björns Fótbolti Tekur við Napoli og verður sá launahæsti í sögunni Fótbolti „Menn þurfa að gera sér grein fyrir að við erum í botnbaráttu, engu öðru“ Fótbolti Real Madrid Evrópumeistari í fimmtánda sinn Fótbolti „Besta kvöld lífs míns“ Fótbolti „Erum á ákveðinni vegferð” Fótbolti Ronaldinho mætti með stæl á úrslitaleikinn Fótbolti Fleiri fréttir Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal Ekkert verður af kaupunum á Everton Bellamy tekur tímabundið við en Lampard er líklega langtímalausnin Red Bull ryður sér til rúms í enska boltanum Breyta deildabikarnum til að létta á leikjaálagi bestu liðanna Samkeppnin eykst hjá Hákoni um markmannstöðu Brentford Einn af hverjum fimm atvinnumönnum notar nikótínpúða Ten Hag gæti þurft að bíða lengi eftir ákvörðun um framtíð sína Klopp til í skrúðgöngu missi Man. City tvo titla til Liverpool UEFA gæti fært United í Sambandsdeildina Njósnarar Liverpool áttu að fylgjast með Koopmeiners en hrifust að öðrum Edu getur ekki sagt það sem hann langar að segja um City Ten Hag skýtur á Slot: „Fólk hefur látið of mikið með Feyenoord“ Rashford kveður samfélagsmiðla í bili og sendir smá pillu Kraftaverkamaðurinn Emery framlengir á Villa Park Chelsea í viðræður um kaup á stjóra Leicester Tekur ekki við Chelsea sem vill ráða nýjan stjóra í vikunni „Fullt af mistökum“ Southampton vann á Wembey og spilar í úrvalsdeildinni á næsta tímabili Stuttorður Guardiola: „Óskaði þeim til hamingju með frábært tímabil“ Rooney tekur við B-deildarliði Plymouth Fyrstu táningarnir síðan Ronaldo árið 2004 Ten Hag: Ósanngjörn gagnrýni á bæði mig og liðið allt Bikarmeistarinn Bruno: „Þurftum að fórna og þjást en við gerðum magnaða hluti“ Manchester United tryggði sér titil í lokaleik tímabilsins Vill losna frá Crystal Palace og kaupa Everton Stýrir leik á Stamford Bridge eftir að Chelsea rak hann Ten Hag telur öruggt að hann verði áfram á næsta tímabili Segja að Ten Hag verði rekinn sama hvernig úrslitaleikurinn fer Fernandes eyðir óvissunni: „Ég vil ekki fara“ Sjá meira