Fótbolti

Aron Einar: Takk Íslendingar fyrir ruglaðan stuðning

Aron Einar í leikslok.
Aron Einar í leikslok. vísir/getty
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði Íslands, var svekktur en stoltur í leikslok eftir 5-2 tap Íslands gegn Frökkum í 8-liða úrslitum á EM í Frakklandi.

„Ég er svekktur, en samt svo ótrúlega stoltur af þessu ævintýri sem er búið að eiga sér stað," sagði Aron í samtali við Pétur Marteinsson hjá Símanum í leikslok.

„Þetta er búið að vera erfitt. Þetta hefur verið mikil harka og mikil vinnsla og gífurlegur stuðningur frá öllum Íslendingum."

Stuðningsmenn Íslands sungu og sungu eftir leikinn þrátt fyrir tapið. Aron Einar gat varla komið í orð hversu góður stuðningurinn hafi verið:

„Þeir eru enn hérna að. Ég á ekki til neitt aukatekið orð. Þetta er ótrúlegt."

„Þetta sýnir okkar stuðning og bara hvað við erum búnir að leggja í þetta. Þetta er leiðinlegur leikur. Fyrri hálfleikurinn var skelfilegur, en í síðari hálfleik náðum við aðeins að bjarga andlitinu."

„Við töluðum um í hálfleik að við hefðum engu að tapa og gætum ekki farið úr keppninni svona."

„Í rauninni mættum við þeim bara með kassann út og spiluðum ágætlega í síðari hálfleik, en fyrri hálfleikurinn á móti svona sterku liði á ekki að gerast."

Aron Einar segir að strákarnir muni læra af þessu og að þeir séu rétt að byrja, en næst á dagskrá er undankeppni HM í Rússlandi 2018.

„Við lærum af því, en ég er gífurlega stoltur af strákunum og þetta fer í reynslubankann eins og margt annað," sagði Aron sem endaði viðtalið á þennan hátt:

„Bara takk Íslendingar fyrir ruglaðan stuðning og það var ótrúlegt að taka þátt í þessu. Við erum rétt að byrja."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×