Flugvöllurinn í París rýmdur vegna grunsamlegrar tösku Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 4. júlí 2016 18:28 Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/EPA
Hluti flugvallarins Charles de Gaulle í París var rýmdur nú á sjötta tímanum vegna grunsamlegrar tösku í reiðileysi. Á flugvellinum eru um 180 Íslendingar á vegum ferðaskrifstofunnar Vita en um sérstaka ferð var að ræða vegna knattspyrnuleiks Íslands gegn Frakklandi á EM sem leiknn var í gær á leikvellinum Stade de France í París. Flugið átti að fara í loftið á níunda tímanum að staðartíma eða rétt fyrir sjö að íslenskum tíma. „Þeir sáu tösku sem þeim fannst grunsamleg,“ segir Guðrún Sigurgeirsdóttir hjá Vita. Hún er sjálf ekki stödd í Frakklandi en er í nánu sambandi við starfsmann ferðaskrifstofunnar sem hélt utan ásamt hópnum. „Þetta er svolítið sérstakt því að þessi hópur lenti í því sama þegar þau fóru út. Þá hringdi brunakerfið í Leifstöð þannig að það þurfti að rýma völlinn.“ Guðrún bendir á að Frakkar hafi hert öryggisgæslu í landinu vegna Evrópumótsins, sérstaklega vegna hryðjuverkaárásarinnar í höfuðborginni í fyrra. „Það er engin ógn sem við höfum heyrt af. Þeir sáu þessa grunsamlegu tösku í reiðileysi og þorðu ekki annað en að tékka á því.“ Farþegi sem Vísir ræddi við segir alla tiltölulega rólega en hópurinn bíður frétta fyrir utan flugstöðina. Fluginu mun seinka nokkuð þar sem enn átti eftir að innrita um helming farþeganna. Uppfært 18.30:Farþegunum var rétt í þessu hleypt aftur inn í flugstöðina og mun flugið leggja af stað um hálftíma á eftir áætlun.
Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Innlent Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana Innlent Fleiri fréttir Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli 270 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Ástandið á bráðamóttökunni sýni viðkæmni kerfisins Sjá meira