Innlent

Lögreglan um afgirtan Austurvöll: Göngum ekki lengra en yfirvöld fara fram á

Birgir Olgeirsson skrifar
Jón H.B. Snorrason aðstoðarlögreglustjóri segist hafa setið fundi með forsætisráðuneytinu, borginni og Alþingi þar sem rætt var hvernig takmarka mætti hávaðamengun á Austurvelli á 17. júní.
Jón H.B. Snorrason aðstoðarlögreglustjóri segist hafa setið fundi með forsætisráðuneytinu, borginni og Alþingi þar sem rætt var hvernig takmarka mætti hávaðamengun á Austurvelli á 17. júní. Vísir/Björg Eva Erlendsdóttir
„Það er náttúrlega lögreglan sem setur upp þess afmörkun en við erum með þessa afmörkun í góðu samstarfi og samvinnu við þau yfirvöld sem standa að þessum hátíðarhöldum og tölum ábendingum og áhyggjum þeirra,“ segir Jón H.B. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, um svæðið sem girt var af vegna hátíðardagskrá á Austurvelli  í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslendinga síðastliðinn föstudag. 

Svæðið var stækkað til muna miðað við fyrri ár og vakti undran viðstaddra sem áttu erfitt með að sjá og heyra það sem þar fór fram. 

Ákvörðunin hefur verið umdeild og undraðist formaður þjóðhátíðarnefndar, Þórgnýr Thoroddsen, á þessari ákvörðun. 

Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar, sagði fullt tilefni fyrir Reykjavíkurborg að endurskoða samkomulag við forsætisráðuneytið og Alþingi um hátíðarhöld á Austurvelli þar sem almenningi hefði verið haldið frá hátíðarhöldunum í ár.

Engar sérstakar ráðstafanir voru fyrirhugaðar á fimmtudag

Morgunblaðið birti frétt á þjóðhátíðardaginn sjálfan þar sem því var haldið fram að umræður um að takmarka aðgengi almennings að hátíðarhöldunum hefðu átt sér stað bæði í þjóðhátíðarnefnd og innan forsætisráðuneytisins. Haft var eftir Sigurði Inga Jóhannssyni forsætisráðherra að hann telji girðingar af hinu illa og að yfirvöld ættu að treysta fólki. Hann lagði áherslu á að ákvörðunin væri ekki í höndum forsætisráðuneytisins heldur þjóðhátíðarnefndar og lögreglu.

Jón H.B. sagði við Morgunblaðið að ekki yrði gripið til neinna sérstakra ráðstafanna en sagði þó að hann hefði setið undirbúningsfund með fulltrúum frá forsætisráðuneytinu, borgaryfirvöldum og Alþingi vegna hátíðahaldanna þar sem rætt var sérstaklega hvernig mætti takmarka hávaðamengun með hliðsjón af þeim mótmælum sem voru við hátíðahöldin í fyrra.

Allt gert í góðri samvinnu við yfirvöld

Jón H.B. segir í samtali við Vísi að þessi takmörkun á Austurvelli í ár hafi verið ákveðna og framkvæmda í góðri samvinnu við þau yfirvöld sem standa að þessari hátíðardagskrá.

„Og tekið tillit til þeirra sjónarmiða og tekið mið af þeim áhyggjum sem þau eru með,“ segir Jón H.B. En eftir stendur að forsætisráðuneytið, borgin og Alþingi segjast ekki hafa farið fram á frekari takmarkanir á Austurvelli vegna mótmælanna í fyrra.

Aðspurður segist Jón H.B. eiga erfitt með að trúa að þessir aðilar séu með þessum yfirlýsingum að hlaupast undan þessari ákvörðun.

„Þau voru með okkur á fundum þar sem þetta var ákveðið. Það eru við sem ákveðum þetta en við göngum ekki lengra en þeir vilja allavega, jafnvel styttra,“ segir Jón H.B. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×