Skildi unga dóttur sína eftir á strönd til að deyja Atli Ísleifsson skrifar 20. júní 2016 21:27 Lögregla hafði uppi á konunni, Fabienne Kabou, með aðstoð mynda úr öryggismyndavélum eftir að lík stúlkunnar fannst. Vísir/AFP
Réttarhöld hófust í Frakklandi í morgun yfir konu sem sökuð er um að hafa orðið 15 mánaða dóttur sinni að bana með því að skilja hana eftir á strönd í norðurhluta Frakklands á köldu nóvemberkvöldi árið 2013. Veiðimenn fundu lík stúlkubarnsins degi síðar. Í frétt BBC segir að lögregla hafi haft uppi á konunni, Fabienne Kabou, með aðstoð mynda úr öryggismyndavélum, en talið er að konan hafi þjáðst af ofskynjunum, glímt við þunglyndi og andleg veikindi. „Ég batt enda á líf hennar þar sem það var auðveldara þannig,“ sagði konan fyrir rétti og bætti við að sér hafi liðið líkt og einhver hafi hjálpað sér og að hún hafi ekki getað hætt við verknaðinn. Fjölmiðlar greina frá því að faðir stúlkunnar hafi ekki sýnt nokkurn áhuga á uppeldi dóttur sinnar. Stúlkan var kölluð Adelaide, en var hvergi skráð í gagnagrunnum hins opinbera og enginn vissi um tilvist hennar að foreldrum hennar frátöldum. Kabou ferðaðist frá heimili sínu í París í nóvember 2013 til strandbæjarins Berck-sur-mer þar sem hún spurðist fyrir um hvenær væri háflóð og skildi síðar barnið eftir í flæðarmálinu. Réttarsálfræðingur sagði að uppvöxtur konunnar í Afríkuríkinu Senegal hafi stuðlað að tíðum hugsunum sem sneru að göldrum og umturnað viðhorfum hennar til heimsins. Verjandi Kabou segir að skjólstæðingur sinn geri sér vel grein fyrir því hvað hann hafi gert og að hann eigi sér engar málsbætur.Vísir/AFP
Mest lesið „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Innlent Engin byssa reyndist vera í bílnum Innlent Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Innlent „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Innlent Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Innlent Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Erlent Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar Innlent Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Erlent „Alvarlegar afleiðingar“ verði greiðsluþátttöku hætt Innlent Neitar að birta dómsskjöl og gagnrýnir Trump-liða fyrir blekkingarleik Erlent Fleiri fréttir Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Neitar að birta dómsskjöl og gagnrýnir Trump-liða fyrir blekkingarleik Fordæmir dráp á blaðamönnum og vill sjá valkyrjur stíga harðar fram Sagður slaka á kröfum og útiloka ekki landsvæðaskipti Buðu ferðamönnum upp á „stjarnferðalag“ með heimablönduðu froskaeitri Sigar þjóðvarðliðum á götur Washington og setur lögregluna á sitt vald Ákæra stjórnendur flutningaskips vegna skemmda á sæstreng Sagður hafa unnið fyrir fjölmiðlateymi Hamas áður en stríðið hófst Fordæma „markviss“ dráp Ísraela á blaðamönnum á Gasa Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Ástralir hyggjast viðurkenna sjálfstæða Palestínu Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Sæti Artúrs logar Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti Stór skjálfti reið yfir í Tyrklandi Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Sjá meira