Ofbeldismál að buga starfsfólk Þorgeir Helgason skrifar 18. nóvember 2016 07:00 Heimilisofbeldi reyndist meira en áætlað var í Kópavogi. Vísir/Teitur „
Verkefnið hefur gengið ofsalega vel en það er gríðarlega mikið álag á starfsfólki barnaverndar,“ segir Kolbrún Þorkelsdóttir, formaður barnaverndarnefndar Kópavogsbæjar, um átak gegn heimilisofbeldi. Bæjarstjóri Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson, og Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, undirrituðu í fyrravor samstarfsyfirlýsingu um tilraunaverkefni til eins árs á sviði barnaverndar. Í bréfi til barnaverndarnefndar frá ofbeldisteymi og deildarstjóra barnaverndar segir að starfsfólk barnaverndar hafi lagt sig fram við að sinna málaflokknum vel og veita öfluga og faglega aðkomu. Hins vegar sé ljóst að deildin geti ekki sinnt þessari vinnu áfram með þann fjölda starfsmanna sem heimild er fyrir í deildinni. Barnavernd Kópavogs hafði afskipti af 71 fjölskyldu eða 118 börnum sem upplifðu heimilisofbeldi á tímabilinu 1. júlí 2015 til 30. júní 2016. Fjöldinn er mun meiri en gert var ráð fyrir í upphafi og vinnsla hvers máls reyndist viðameiri. Þessi fjöldi heimilisofbeldismála hefur bæst við almenn störf starfsmanna barnaverndar í Kópavogi. „Það segir sig alveg sjálft að starfsmenn geta ekki endalaust haldið svona mörgum boltum á lofti. Þetta mun á endanum koma niður á starfinu,“ segir Kolbrún. Á fundi barnaverndarnefndar Kópavogs í gær var bókað að til að unnt væri að halda áfram þessu nauðsynlega starfi þyrfti að koma til aukinn stuðningur. Nefndin sé mjög meðvituð um mikilvægi verkefnisins og leggur mikla áherslu á að því sé framhaldið. „Það sem er svo jákvætt við þetta verkefni er að það er að nást árangur. Það er svo mikilvægt að málum eins og þessum sé fylgt vel eftir,“ segir Kolbrún. Hún segir að það væri mikið ábyrgðarleysi að hætta þessu verkefni. Þegar Fréttablaðið leitaði svara hjá Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra Kópavogsbæjar, um næstu skref bæjarins sagðist hann mundu funda með sviðsstjóra velferðarsviðs og fara yfir forgangsröðina á sviðinu hans.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.vísir/anton
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Sjá meira