Innlent

Segja forsetann hafa verið í erfiðri stöðu: „Ólafur í raun og veru haft kosningar af þjóðinni í bili“

Birgir Olgeirsson skrifar
Stjórn og stjórnarandstaða þurfa að ná saman sem fyrst um dagsetningu fyrir kosningar. Þetta kom fram í spjalli þeirra Grétars Þór Eyþórssonar stjórnmálafræðisprófessors við Háskólann á Akureyri, Ólafíu B. Rafnsdóttur formanns VR, og Svavars Gestssonar fyrrverandi ráðherra í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. 

Ólafía sagði nauðsynlegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að menn komist að samkomulagi um tímasetningu kosninga á miðstjórnarfundi Sjálfstæðisflokksins og nái að stilla sínum helstu verkefnum upp.Grétar sagði mikilvægt að fá þessa dagsetningu fram í næstu viku eða fljótlega og stjórn og stjórnarandstaða þurfi að ná samkomulagi þar um.

Sjá einnig: Fráleitt að halda því fram að ríkisstjórnin ætli ekki að standa við loforð um kosningar

Ólafía Rafnsdóttir, Grétar Eyþórsson og Svavar Gestsson fóru yfir atburði vikunnar í Sprengisandi á Bylgjunni.
Forsetinn hafði ekki annan kost í stöðunni

Þau fóru yfir atburði liðinnar viku ásamt þáttastjórnandanum Sigurði M. Egilssyni sem spurði þau meðal annars út í fund Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, þáverandi forsætisráðherra, með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, á Bessastöðum síðastliðinn þriðjudag þar sem Sigmundur Davíð óskaði eftir því að fá samþykki forsetans á þingrofstillögu sinni. 

Grétar sagðist meta það sem svo að Ólafur hafi ekki haft annan kost í stöðunni en að hafna beiðni Sigmundar Davíðs þar sem ekki var þingmeirihluti fyrir því að rjúfa þing. Í það minnsta hafi Sigmundur Davíð ekki geta sýnt fram á það á fundinum og kom það síðar í ljós að hann naut hvorki stuðnings frá Framsóknarflokknum né Sjálfstæðisflokknum. 

Flókin staða blasti við Ólafi

Svavar Gestsson sagði þetta hafa verið flókna stöðu fyrir Ólaf og taldi hann hafa farið illa með Sigmund. „Þessi blaðamannafundur sem Ólafur hélt eftir fundinn með Sigmundi, mér fannst hann sérkennilegur og þetta tal að forsetinn væri að gera grín að einhverri andskotans tösku frammi í eldhúsi, það var alveg á mörkunum. Segjum að forsetinn hefði skrifað upp á þingrofstillöguna þá hefði það legið fyrir að það átti að rjúfa þing og efna til kosninga en væntanlega hefði Sjálfstæðisflokkurinn farið út úr stjórninni því hann var ósammála þessum vinnubrögðum,“ sagði Svavar.

Ólafur Ragnar hafi í raun og veru haft kosningar af þjóðinni

Hann sagði að ef Ólafur Ragnar hefði samþykkt þingrofstillöguna þá hefðu verið líkur á að þingið hefði komið saman og samþykkt vantraust á ríkisstjórn Sigmundar Davíðs og ákveðið kosningar með þeim hætti. 

„Ég held að það sé hægt að halda fram að Ólafur Ragnar hafi verið á mörkunum í þessu efni og í raun og veru, hvað sem mönnum finnst um þennan aðdraganda Sigmundar Davíðs sem var alveg ferlegur, þá hafi Ólafur í raun og veru haft kosningar af þjóðinni í bili. Það finnst mér umhugsunarvert ef forsetinn ætlar í framtíðinni að fara í það hlutverk í að telja þingmenn með eða á móti einhverju.“

Heyra má spjall þeirra í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×