List í öllum hornum Viktoría Hermannsdóttir skrifar 9. apríl 2016 12:00 Hér má sjá hluta listamannanna sem sýna á Listahátíð Vinnslunnar í kvöld. ? Fréttablaðið/Ernir
Við fyllum öll rými Tjarnarbíós með list í öllum hornum,“ segir Vala Ómarsdóttir úr listahópnum Vinnslunni sem stendur að sinni árlegu listahátíð í Tjarnarbíói í kvöld. Á þriðja tug listamanna sýna verk sín en öll rými hússins verða vettvangur listflutnings, hvort sem um er að ræða leiksvið, skrifstofur eða salerni. "Við erum sjö í hópnum en einu sinni á ári bjóðum við öðrum listamönnum að sýna með okkur og búum til utan um það heildarupplifun fyrir áhorfandann,“ segir Vala. Á dagskrá verður myndlist, lifandi tónlist, gjörningar, dans, leikhúsverk, myndbandslist og fleira. Síðastliðin þrjú ár hefur Vinnslan staðið fyrir níu samsýningum og hafa 250 listamenn úr öllum listgreinum tekið þátt. Sérstök áhersla er lögð á verk í vinnslu eða þróunarstarf, rannsóknir og tilraunir listamanna. Meðal listamanna sem sýna eru þau Sigga Soffía, Stafrænn Hákon, Mikael Lind, Körrent Kúltúr, Quest, Harpa Rún Ólafsdóttir, Einar Indra og Elín Anna Þórisdóttir. „Það er mjög skemmtileg upplifun að ganga í gegnum þetta flotta gamla hús og sjá mismunandi listform í gangi í hverju horni,“ segir Vala. Hátíðin var fyrst haldin árið 2012 og er orðið sífellt vinsælla að vera með. Fjölmargir sækja hátíðina. „Það hefur verið fullt út úr dyrum öll árin. Núna sóttu svo margir um að vera með að við erum alveg að sprengja húsnæðið utan af okkur,“ segir Vala. Dagskráin hefst klukkan 19.30 og stendur til klukkan 23. Kvöldið endar svo með tónleikum með hljómsveitinni Quest. „Við höfum haldið þessa hátíð á þessum tíma þar sem það er tilvalið að dansa sig inn í vorið og endum því kvöldið með tónleikum.“
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Sjá meira