Cech ekki með næstu 3-4 vikurnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. mars 2016 09:34 Vísir/Getty
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, staðfesti í morgun að markvörðurinn Petr Cech eigi við meiðsli í kálfa að stríða og að hann verði frá næstu 3-4 vikurnar. „Þetta eru nokkuð alvarleg meiðsli í kálfa,“ sagði Wenger á fundinum en það kemur þá í hlut Kólumbíumannsins David Ospina að verja mark Arsenal næstu vikurnar. „Ég hef fulla trú á honum. Ég hef engar áhyggjur af þessu,“ sagði Wenger.Sjá einnig: Cech: Stjörnufagnið það besta sem ég hef séð Ospina er 27 ára og hefur verið í herbúðum Arsenal síðan 2014. Hann spilaði átján leiki í ensku úrvalsdeildinni í fyrra en engan á núverandi leiktíð. Arsenal mætir Tottenham í grannaslag um helgina en leikurinn hefur þar að auki mikla þýðingu fyrir titilbaráttuna í Englandi. Tottenham er í öðru sæti deildarinnar með 54 stig, þremur stigum á eftir toppliði Leicester, en Arsenal er í því þriðja með 51 stig.Koscielny einnig frá Wenger staðfesti einnig á blaðamannafundi sínum í morgun að varnarmaðurinn Laurent Koscielny missi af leiknum en allir aðrir sem tóku þátt í tapleiknum gegn Swansea á miðvikudaginn eru klárir í slaginn. Jack Wilshere er þó enn frá vegna meiðsla og staðfesti Wenger að það séu enn þrjár vikur í að hann geti byrjað að spila á nýjan leik. Markvörðurinn David Ospina hóf ferilinn með Nacional í heimalandinu en fór svo til Nice í Frakklandi árið 2008, þar sem hann var í sex ár. Arsenal keypti hann svo á þrjár milljónir punda sumarið 2014.
Enski boltinn Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Enski boltinn Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Fleiri fréttir Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Sjá meira