Tottenham mistókst að komast á toppinn | Sjáðu mörkin og rauða spjaldið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. mars 2016 14:30 Harry Kane og Kyle Walker fagna marki þess fyrrnefnda. Vísir/Getty
Tottenham mistókst að komast á topp ensku úrvalsdeildarinnar þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Arsenal í nágrannaslag í dag.Öll helstu atvik leiksins má sjá hér að neðan. Leicester er því ennþá á toppnum með 57 stig en Refirnir mæta Watford í síðdegisleiknum og geta með sigri náð fimm stiga forystu á Tottenham. Spurs er í 2. sæti deildarinnar með 55 stig og Arsenal í því þriðja með 52 stig. Tottenham var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik, sérstaklega framan af, en það Aaron Ramsey skoraði eina markið með glæsilegri hælspyrnu eftir sendingu Hectors Bellerín á 39. mínútu. Staðan því 0-1 í hálfleik, Arsenal í vil. Eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik fékk Francis Coquelin að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt fyrir brot á Harry Kane. Skömmu síðar var Kane hársbreidd frá því að jafna metin en David Ospina varði skot hans eftir hornspyrnu. Í endursýningu sást að boltinn var nánast allur kominn inn fyrir línuna. Pressa heimamanna bar loks á árangur á 60. mínútu þegar Toby Alderweireld jafnaði metin eftir hornspyrnu. Og aðeins tveimur mínútum síðar kom Kane Tottenham yfir með frábæru marki. Einum færri gáfust Arsenal-menn ekki upp og Alexis Sánchez tryggði þeim stig þegar hann jafnaði metin í 2-2 á 76. mínútu. Þetta var fyrsta mark Sílemannsins í deildinni frá því um miðjan október. Ramsey fékk kjörið tækifæri til að tryggja Arsenal öll stigin þrjú í uppbótartíma en Austurríkismaðurinn Kevin Wimmer komst fyrir skot hans.Tottenham 0-1 Arsenal Coquelin fær rauða spjaldið Kane hársbreidd frá því að koma Spurs yfir Tottenham 1-1 Arsenal Tottenham 2-1 Arsenal Tottenham 2-2 Arsenal
Enski boltinn Mest lesið Lést eftir að hafa dottið af hestbaki Sport Heimir Hallgríms þegar búinn að tryggja sambandinu 277 milljónir Fótbolti Golfstjarnan stytti sér aldur Golf Sveindís Jane mætti og studdi sína konu: Stolt af þér gullið mitt Fótbolti Katrín Tanja á skurðarborðið: Ég er svo stressuð Sport Sjáðu lokasóknina ótrúlegu og senuþjófinn Kane í viðtali Óla Óla Körfubolti Gat ekki gengið fyrir nokkrum dögum en vann síðan sögulegt silfur á HM Sport Goðsögnin Bill Walton látinn Körfubolti Guðlaug Edda komin með Ólympíusæti Sport Sér ekki eftir ræðunni umdeildu þó móðir hans sé virtur eðlisfræðingur Sport Fleiri fréttir Kraftaverkamaðurinn Emery framlengir á Villa Park Chelsea í viðræður um kaup á stjóra Leicester Tekur ekki við Chelsea sem vill ráða nýjan stjóra í vikunni „Fullt af mistökum“ Southampton vann á Wembey og spilar í úrvalsdeildinni á næsta tímabili Stuttorður Guardiola: „Óskaði þeim til hamingju með frábært tímabil“ Rooney tekur við B-deildarliði Plymouth Fyrstu táningarnir síðan Ronaldo árið 2004 Ten Hag: Ósanngjörn gagnrýni á bæði mig og liðið allt Bikarmeistarinn Bruno: „Þurftum að fórna og þjást en við gerðum magnaða hluti“ Manchester United tryggði sér titil í lokaleik tímabilsins Vill losna frá Crystal Palace og kaupa Everton Stýrir leik á Stamford Bridge eftir að Chelsea rak hann Ten Hag telur öruggt að hann verði áfram á næsta tímabili Segja að Ten Hag verði rekinn sama hvernig úrslitaleikurinn fer Fernandes eyðir óvissunni: „Ég vil ekki fara“ Rooney gæti fengið nýtt starf þrátt fyrir hræðilegan árangur síðast Harry Maguire missir af bikarúrslitaleiknum Paquetá ákærður fyrir að sækjast eftir spjaldi í eigin leikjum Lopetegui tekur við West Ham Yfirmenn Pep fullvissir um að félagið verði ekki sakfellt Talið að Man Utd láti Ten Hag fara eftir úrslitaleikinn Féll í vor en vonast eftir Chelsea eða Bayern Ummælin höfðu neikvæð áhrif á Nunez sem hugsar hlýlega til Spánar Liverpool auglýsir lausa stöðu í þjálfarateymi Arne Slot Börn Bruno Fernandes kvöddu Jóhann: „Hann er toppmaður“ Ekki á heimleið: „Á inni nokkur ár á háu stigi“ Pochettino farinn frá Chelsea Benítez ráðleggur Slot fyrir komuna til Liverpool Mo Salah ætlar að vinna titla með Liverpool á næstu leiktíð Sjá meira