Forsætisráðherra Rússlands segir nýtt kalt stríð skollið á Birta Björnsdóttir skrifar 13. febrúar 2016 18:52 Dmitri Medvedev, forsætisráðherra Rússlands. Vísir/AFP
Fulltrúar Bandaríkjanna, Rússlands, Evrópusambandsins, Sameinuðu þjóðanna, Arabandalagsins og fleiri undirrituðu í gær samkomulag væntanlegt vopnahlé í Sýrlandi. Þó er óhætt að fullyrða að ekki ríki fullkomin sátt milli samningsaðila um hvernig stuðla megi að friði í Sýrlandi og spennan magnast á milli Rússlands annars vegar og vesturveldanna hins vegar. Svo mjög að Dmitry Medvedev, forsætisráðherra Rússlands, sagði í dag nýtt kalt stríð skollið á. „Á er skollið nýtt kalt stríð. Næstum daglega þurfum við Rússar að sitja undir ásökunum að vera ógn við NATÓ, Evrópu, Ameríku og önnur lönd,“ sagði Dmitry Medvedev, forsætisráðherra Rússlands, áöryggisráðstefnu í Þýskalandi fyrr í dag. Manuel Valls, forsætisráðherra Frakklands, er einn þeirra sem biðlar til rússneskra yfirvalda að hætta loftárásum í Sýrlandi, þær komi í veg fyrir allar friðarumleitanir. Undir það tekur John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Áður höfðu uppreisnarhópar í Sýrlandi fullyrt að þeir muni ekki leggja niður vopn því þeir hafi enga trú á að Rússar láti af loftárásum til stuðnings Assad, forseta landsins. Medvedev tekur í sama streng og Assad forseti gerði í gær, þegar þeir leggja áherslu á að friðarsamkomulagið nái ekki til baráttunnar við hryðjuverkamenn í Sýrlandi. Óbreyttir borgarar séu aldrei skotmörkin. Átökin í Sýrlandi hafa kostað meira en 250 þúsund manns lífið og 11 milljónir Sýrlendinga hafa flúið heimili sín, þar af hafa fjórar milljónir flúið úr landi.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Sjá meira