Afréttur Seltjarnarneshrepps hins forna innan staðarmarka Kópavogs Jóhann Óli Eiðsson skrifar 9. ágúst 2016 20:30 Kortið sýnir umrætt svæði. mynd/óbyggðanefnd
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað öllum kröfum Reykjavíkurborgar þess efnis að afrétt Seltjarnarneshrepps hins forna verði skipað innan staðarmarka borgarinnar. Dómurinn var kveðinn upp síðastliðinn föstudag. Landsvæðið sem málið snýst um var úrskurðað þjóðlenda af Óbyggðanefnd árið 2006 og sú niðurstaða staðfest af Hæstarétti árið 2009. Af málsgögnum mátti ráða að meginhluti þess lands, sem nú tilheyrir Reykjavík, Seltjarnarnesi og Kópavogi, hafi upprunalega verið í Seltjarnarnesshreppi hinum forna. Árið 1947 var samþykkt að skipta hreppnum í tvö sveitarfélög og var það mat Óbyggðanefndar, sem úrskurðaði um málið árið 2014, að þá hafi áðurnefndum afrétt verið skipað innan staðarmarka Kópavogs. Í málsástæðum Reykjavíkurborgar mátti meðal annars finna það sjónarmið að eðli málsins samkvæmt ætti lögsaga á afréttarsvæði sveitarfélaganna þriggja að vera hjá stærsta sveitarfélaginu. Einnig taldi borgin að ákvörðun félagsmálaráðherra, að skipta Seltjarnarneshrepp, hafi verið ólögmæt. Í ljósi þess að Reykjavíkurborg hafði ekki uppi andmæli gegn umræddri ákvörðun félagsmálaráðuneytisins fyrr en langt var liðið frá ákvörðunni, rúmum sex áratugum síðar, var það mat dómsins að tómlæti borgarinnar myndi valda því að ekki væri unnt að líta til áðurgreindra sjónarmiða. Afréttur Seltjarnarneshrepps hins forna er því innan staðarmarka Kópavogs. Borgin þarf að auki að greiða Kópavogsbæ 2,2 milljónir króna í málskostnað.
Mest lesið Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Fleiri fréttir Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður „Maður hefur verulegar áhyggjur af því“ Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Sjá meira