„Gríðarlegt tjón sem þetta blessaða fólk hefur orðið fyrir“ sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 21. nóvember 2016 10:06 Slökkvistarf mun standa eitthvað fram yfir hádegi, segir Bjarni Þorsteinsson, slökkviliðsstjóri í Borgarnesi. Vísir/gva
Slökkviliðsmenn vinna nú að því að slökkva í síðustu glæðunum í fiskþurrkunarhúsum við bæinn Miðhraun á Snæfellsnesi. Mikill eldur kom upp í morgun, og er tjónið gríðarlegt, að sögn Bjarna Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra. „Það voru tvö gríðarstór hús alelda þegar við komum hér að,“ segir Bjarni í samtali við fréttastofu. Hann segir að þrjú stór fiskþurrkunarhús séu við bæinn. Eldurinn hafi komið upp í einu þeirra og tekist að teygja sig yfir í næsta hús, en að slökkviliðsmenn hafi getað varið þriðja og stærsta húsið með eldvarnarvegg. Hins vegar sé ljóst að um altjón sé að ræða. „Það er allt farið. Þetta er alveg gríðarlegt tjón sem þetta blessaða fólk hefur orðið fyrir,“ segir Bjarni. Eldurinn kom upp á fimmta tímanum í morgun en eldsupptök eru enn ókunn, en lögregla fer með rannsókn málsins. Flutningabílstjóri , sem átti leið hjá bænum, varð var við eldinn og gerði neyðarlínunni viðvart. Bjarni segist gera ráð fyrir að slökkvistarf muni standa yfir í um tvær til þrjár klukkustundir til viðbótar.
Tengdar fréttir Mikill eldsvoði á Snæfellsnesi Allt slökkvilið Borgarbyggðar ásamt slökkviliðum af öllu Snæfellsnesi og frá Akranesi, berjast nú við mikinn eld í tveimur stórum fiskþurkunarhúsum að bænum Miðhrauni í Eyja- og Miklaholtshreppi, skammt frá Vegamótum. 21. nóvember 2016 07:03 Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Vance þreifar fyrir sér í Sviss Erlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent Fleiri fréttir „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Sjá meira
Mikill eldsvoði á Snæfellsnesi Allt slökkvilið Borgarbyggðar ásamt slökkviliðum af öllu Snæfellsnesi og frá Akranesi, berjast nú við mikinn eld í tveimur stórum fiskþurkunarhúsum að bænum Miðhrauni í Eyja- og Miklaholtshreppi, skammt frá Vegamótum. 21. nóvember 2016 07:03