52 létust í óeirðum í fangelsi í Mexíkó Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 11. febrúar 2016 16:22 Fjöldi fólks, sem óttaðist um ættingja sína sem afplána í fangelsinu, safnaðist saman fyrir utan fangelsið í nótt og krafðist upplýsinga um hvað gengi á innan dyra. vísir/epa
52 létust og 12 slösuðust í fangelsinu Topo Chico í borginni Monterrey í Mexíkó í nótt eftir að óeirðir brutust þar út. Þá leikur grunur á að í einni af fjórum byggingum fangelsisins hafi fangar kveikt í rusli og húsgögnum. Fjöldi fólks, sem óttaðist um ættingja sína sem afplána í fangelsinu, safnaðist saman fyrir utan fangelsið í nótt og krafðist upplýsinga um hvað gengi á innan dyra. Yfirvöld gáfu hins vegar engar upplýsingar, til að mynda um hversu margir hefðu látist, fyrr en nokkrum klukkutímum eftir að óeirðunum lauk. Ekki er vitað hvers vegna óeirðirnar brutust út en þær eru mögulega taldar tengjast flóttatilraun fanga sem tengjast eiturlyfjagenginu Zetas. Samkvæmt yfirvöldum slapp þó enginn úr fangelsinu í ringulreiðinni. Óeirðir eru tíðar í mexíkóskum fangelsum sem flest hver eru yfirfull og þá grasserar spilling innan fangelsismálakerfisins. Topo Chico-fangelsið er engin undantekning. Þar sofa fangar á göngunum vegna plássleysis og átök milli eiturlyfjagengjanna Zetas og Golfos eru tíð. Þá hafa kvenfangar ítrekað kvartað yfir kynferðislegri misnotkun í fangelsinu af hálfu karlmanna sem afplána með þeim.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira