Slasaðist við drykkju en vildi bætur fyrir uppvasksslys Jóhann Óli Eiðsson skrifar 8. ágúst 2016 23:00 Maðurinn sagði að hann hefði slasast við uppvask en það stemmdi ekki við lögregluskýrslur. Myndin er úr safni og tengist aðilum fréttarinnar ekki neitt. vísir/getty
Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur hafnað áfrýjun manns um bætur úr slysatryggingum almannatrygginga. Með því staðfesti nefndin niðurstöðu Sjúkratryggingar. Samkvæmt sögu mannsins hafði hann runnið til í bleytu þegar hann var að ganga frá í eldhúsi sínu eftir matseld. Við það féll hann á gólfið og slasaðist við það. Maðurinn sótti um bætur þar sem hann væri slysastryggður vegna heimilisstarfa en Sjúkratryggingar Íslands höfnuðu því. Ástæðan fyrir synjuninni var sú að samkvæmt lögregluskýrslu þá slasaðist maðurinn ekki við heimilsstörf heldur þegar hann sat að sumbli. Í læknabréfi heila- og skurðlækninga segir að hann hafi verið að skemmta sér, verið talsvert í glasi, skrikað fótur og fallið í gólfið. Vitni var að atvikinu. Hún sagði við lögreglu að þau hefðu verið í „góðum fíling“ að tala saman. Þau hefðu drukkið mikið vín og byrjað að kyssast. Síðan hafi hann staðið upp og fallið. Önnur skýrsla var tekin af henni síðar og bar hún þá á sama veg nema hún bætti við að maðurinn hefði staðið upp, byrjað að taka saman eftir matinn og hrasað. Það var mat úrskurðarnefndarinnar að þó slysið hefði átt sér stað í eldhúsi mannsins þá hefði það ekki átt sér stað við eðlileg heimilisstörf. „Úrskurðarnefnd fær því ráðið af gögnum málsins að fyrst hafi komið fram tenging á orsök slyssins við frágang eftir matseld í tilkynningu til Sjúkratrygginga Íslands um sextán mánuðum eftir slysið,“ segir í niðurstöðu nefndarinnar. Þá tók nefndin einnig fram að í tilkynningunni komi fram að maðurinn hafi verið að verið að vaska upp potta. Af því leiði að hann hljóti að hafa staðið við vask þegar atvikið átti sér stað. Það samræmist ekki lögregluskýrslum. Þær voru lagðar til grundvallar.
Mest lesið Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Fleiri fréttir Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður „Maður hefur verulegar áhyggjur af því“ Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Sjá meira