Breyttu hjúkrunarheimili fyrir aldraða til að gera það heimilislegra Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 1. september 2016 12:31 Notuð húsgögn fengust gefins eða þau voru keypt ódýrt á vefsíðum þar sem fólk selur notuð húsgögn.
Gerðar hafa verið miklar breytingar á hjúkrunarheimilinu Manglerud í Osló í Noregi með það að markmið að gera það minna eins og stofnun og meira eins og heimili og samfélagi. Þannig er búið að opna fótbóltakrá og litla verslun á hjúkrunarheimilinu og keypt hafa verið ný húsgögn, sem eru reyndar notuð, til að gera stofurnar heimilislegri. Manglerud er hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Fjallað er um málið á vef Aftenposten en framkvæmdastjóri Manglerud Hilde Helland kynnti verkefnið á PechaKucha-kvöldi í Osló í vikunni, en á slíkum kvöldum eru ýmsar nýstárlegar hugmyndir kynntar með tuttugu ljósmyndum á nokkrum mínútum. Í frétt Aftenposten kemur fram að hjúkrunarheimilið hafi verið rekið af sveitarfélaginu þar til ársins 2013 en þá tók fyrirtækið Unicare við rekstrinum. Helland segir að þau hafi séð að ýmsu þyrfti að breyta en húsið sjálft þarfnaðist til dæmis viðhalds. Unicare hafði hins vegar ekki mikla peninga til umráða og því var til að mynda gripið til þess ráðs að fá notuð húsgögn gefins eða kaupa þau ódýrt á vefsíðum þar sem fólk selur notuð húsgögn. Matargeymslu var síðan breytt í litla verslun með hjálp frá norskum matvöruverslunum og þá var öðru herbergi breytt í veitingastað. Þá var komið upp lítilli krá á staðnum þar sem íbúar á hjúkrunarheimilinu geta meðal annars horft á fótboltaleiki og fengið sér bjór sem bruggaður er á staðnum, og svo er einnig spa á hjúkrunarheimilinu. Í frétt Aftenposten má sjá myndband af kynningu Helland í vikunni.
Mest lesið Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Innlent Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Erlent Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Innlent Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Innlent Staðfesta hnífstunguárás: Gerandinn handtekinn Fréttir Akreinum fækki þó bílum fjölgi: Flöskuhálsinn ekki endilega fjöldi akreina Innlent Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Innlent Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Erlent Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Fleiri fréttir Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Að minnsta kosti átján látnir eftir umfangsmiklar árásir „Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ Páfagarður bannfærir alla presta og fylgjendur bræðralagsins Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þrettán látnir hið minnsta eftir stóra drónaárás Rússa Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Þýska landsliðið spegli land stöðnunar Eldur braust út í fjölbýlishúsi og nokkrir eru látnir Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Sjá meira
Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent
Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent