Slagsmál vegna reykinga í strætóskýli við Suðurlandsbraut Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 16. nóvember 2016 17:30 Varasamt að reykja í strætóskýli, segir lögregla. vísir/ernir
Til slagsmála kom í strætóskýli við Suðurlandsbraut klukkan rúmlega eitt í dag á milli reykingamanns og annars manns, vegna reykinga þess fyrrnefnda. Sá síðarnefndi hafði bent reykingamanninum á að bannað væri að reykja inni í strætóskýlum þannig að reykingamaðurinn hélt iðju sinni áfram fyrir utan skýlið. Sá reyklausi tók það hins vegar ekki í sátt og hóf að taka ljósmyndir af viðkomandi. Við það reiddist reykingamaðurinn með þeim afleiðingum að til handalögmála kom, og þurfti annar þeirra að leita á slysadeild til aðhlynningar, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu. Þó er ekki tekið fram hvor þeirra hafi þurft að leita sér læknisaðstoðar, né hvort mennirnir hafi verið handteknir. „Varasamt að reykja í strætóskýli,” segir hins vegar í tilkynningunni. Þá kemur fram í tilkynningunni að karlmaður hefði verið handtekinn í austurbænum klukkan half eitt í dag eftir að tilkynnt var um húsbrot og ágreining. „Þar var fyrrverandi sambýlisfólk af erlendum uppruna að rífast það heitt að konan rak karlinn á dyr. Karlinn brást hinn versti við og lögreglan kölluð til,” segir í skeyti lögreglu.
Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Fleiri fréttir Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Með lambúshettu að prófa sírenur og gjallarhorn Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Alelda bíll í Kópavogi Grunaður barnaníðingur gengur laus Sjá meira